Ása Sigríður Þórisdóttir 29. ágú. 2022

Enn liggur leiðin fram á við - óskum eftir erindum um krabba­meins­rannsóknir

Óskað er eftir erindum á málþing í tilefni alþjóðadags krabbameinsrannsókna. Erindin skulu vera 8-10 mínútur og æskilegt er að gefa gott yfirlit yfir sjúkdóminn eða stöðuna sem verið er að rannsaka (stöðu þekkingar) áður en farið er í niðurstöður eigin rannsókna.

Í tilefni alþjóðadags krabbameinsrannsókna bjóða Krabbameinsfélagið og Samtök um krabbameinsrannsóknir á Íslandi (SKÍ) til málþings miðvikudaginn 21. september kl. 17:30-20:00 í Veröld - húsi Vigdísar.

Á málþinginu verður sjónum beint að íslenskum rannsóknum sem varða leiðina fram á við í baráttunni gegn krabbameinum.

Óskað er eftir erindum á málþingið. Erindin skulu vera 8-10 mínútur og æskilegt er að gefa gott yfirlit yfir sjúkdóminn eða stöðuna sem verið er að rannsaka (stöðu þekkingar) áður en farið er í niðurstöður eigin rannsókna.

Ekki skiptir meginmáli hvort rannsóknir eru langt eða skemur komnar, alls konar rannsóknir eru velkomnar.

Sérstaklega eru vísindamenn sem hlotið hafa styrki úr Vísindasjóði Krabbameinsfélagsins hvattir til að skrá ágrip.


Fleiri nýjar fréttir

5. des. 2023 : Aðstoð við að velja mat sem eykur heilbrigði og vellíðan

Við þurfum hjálp! Ákall til matvælaframleiðenda og sölu- og markaðsaðila matvæla. Mörg fyrirtæki standa sig vel þegar kemur að markaðssetningu á mat og drykkjarvöru. Sum fyrirtæki sem bjóða upp á heilsueflandi mat en einnig mat- og drykkjarvörur sem geta haft neikvæð áhrif á heilsu hlífa til dæmis börnum við markaðssetningu á slíkum vörum.

Lesa meira

4. des. 2023 : Kírópraktorstöðin styrkir Bleiku slaufuna

Kírópraktorstöðin afhenti á dögunum 500.000 krónur til Krabbameinsfélagsins. Upphæðin er afrakstur af einstaklega vel heppnuðu Konukvöldi sem þau stóðu fyrir í tilefni af Bleikum október. Krabbameinsfélagið þakkar kærlega fyrir stuðninginn, sem kemur að góðum notum.

Lesa meira

4. des. 2023 : Ný rannsókn styður við einstaklingssniðna meðferð

Ný íslensk rannsókn sem birtist í dag í npj Breast Cancer og var unnin í samstarfi Krabbameinsfélagsins við meinafræðideild og krabbameinslækningadeild Landspítala, og við Háskóla Íslands. 

Lesa meira

2. des. 2023 : Taktu þátt í skemmtilegum jólaleik

Litríkt, jólalegt og hollt á borðið þitt. Krabbameinsfélagið í samstarfi við Banana og Hagkaup óska eftir jólalegum útfærslum á framsetningu á grænmeti, ávöxtum og berjum til að nýta á jólaborðið eða veislubakkann. Veglegir vinningar í boði.

Lesa meira

1. des. 2023 : Minningarorð um Jón Þorgeir Hallgrímsson

Jón Þorgeir Hallgrímsson, læknir, fyrrverandi formaður Krabbameinsfélags Íslands og Krabbameinsfélags Reykjavíkur lést þann 21. nóvember sl., 92 ára að aldri. Jóns Þorgeirs er minnst hjá Krabbameinsfélaginu með mikilli virðingu og þakklæti. Aðstandendum vottar félagið innilega samúð. 

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?