Björn Teitsson 16. ágú. 2021

Eldsterkar pizzur til styrktar krabbameinsrannsóknum

  • Chili-styrkur

Krabbameinsfélagið fékk ánægjulegan og heldur óvenjulegan styrk á dögunum. Afrakstur sölu á eldheitri pizzu hjá veitingastaðnum Shake & Pizza var látinn renna til krabbameinsrannsókna. Það var talið við hæfi, þar sem chili er jafnan talinn allra meina bót.

Veitingastaðurinn Shake & Pizza hóf í vor að bjóða upp á sterkustu pizzu sem er fáanleg á Íslandi. Var rétturinn þróaður af stofnendum chili-áhugafélagsins Ég ann chili. Svo vill til að annar stofnendanna starfar fyrir Krabbameinsfélagið og var því fljótlega augljóst að hægt væri að safna fé fyrir góðum málstað á sama tíma og bragðlaukar chili-aðdáenda brunnu – þeim til mikillar ánægju.

Fulltrúar Shake & Pizza, þau Jóhannes Ásbjörnsson, markaðsstjóri, og Andrea Pétursdóttir, framkvæmdastjóri, mættu galvösk í Krabbameinsfélagið með afrakstur fyrstu 10 daganna sem Ég ann chili-pizzan var í sölu. Niðurstaðan var rétt um 204.000 krónur. Fjárhæðin verður notuð til að styðja við krabbameinsrannsóknir, forvarnir gegn krabbameinum og fræðslu sem er lífsbjargandi starf sem hefur farið fram innan veggja Krabbameinsfélagsins í 70 ár. Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri félagsins, var hæstánægð með styrkinn. „Þetta var afar óvænt og hlýleg gjöf, hlý en e.t.v. ekki jafn brennheit og pizzan! – Hjartans þakkir!“

Jóhannes Ásbjörnsson var afar sáttur með að geta lagt til krabbameinsrannsókna með þessum hætti. „Við á Shake&Pizza lærðum mikið um Chilipipar í þessu skemmtilega samstarfi. Hann er ávanabindandi þegar maður kemst á bragðið. Og eins og Björn og Þórður hjá Ég ann chili hópnum fræddu okkur um þá bendir margt til þess að áhrif chilipipars gæti haft ákveðið forvarnargildi gagnvart alls kyns meinum. Það var því borðleggjandi að tengja samstarfið við Krabbameinsfélagið. Að sama skapi hvet ég alla til þess að fara í chili ferðalagið, það kemur enginn samur tilbaka.“

Annar „höfunda“ Ég ann chili-pizzunnar, Björn Teitsson, starfar sem kynningarstjóri hjá Krabbameinsfélaginu og ber að hluta til ábyrgð á brennandi tungum viðskiptavina Shake & Pizza. Hann er gleðst yfir brunanum en sérstaklega yfir þessu framlagi til góðra verka. „Það er jafnan talað um að neysla á chili sé allra meina bót, það er gott fyrir blóðrásina og hjartað og ver fólk gegn kvefpestum. Sérfræðingar Krabbameinsfélagsins myndu þó fara varlega í að segja það koma í veg fyrir krabbamein en með svona fjárstuðningi er þessi blessaða pizza að gera sitt í því – þannig þetta var algert win win.“

Á myndinni eru Björn Teitsson og Halla Þorvaldsdóttir frá Krabbameinsfélaginu og þau Andrea Pétursdóttir og Jóhannes Ásbjörnsson frá Shake & Pizza. (Mynd: Sigurður Möller Sívertsen).

Eg_ann_chili_pizzaÉg ann chili-pizzan er eldsterk og einstaklega bragðgóð. Hún er fáanleg hjá Shake & Pizza. 


Fleiri nýjar fréttir

5. des. 2023 : Aðstoð við að velja mat sem eykur heilbrigði og vellíðan

Við þurfum hjálp! Ákall til matvælaframleiðenda og sölu- og markaðsaðila matvæla. Mörg fyrirtæki standa sig vel þegar kemur að markaðssetningu á mat og drykkjarvöru. Sum fyrirtæki sem bjóða upp á heilsueflandi mat en einnig mat- og drykkjarvörur sem geta haft neikvæð áhrif á heilsu hlífa til dæmis börnum við markaðssetningu á slíkum vörum.

Lesa meira

4. des. 2023 : Kírópraktorstöðin styrkir Bleiku slaufuna

Kírópraktorstöðin afhenti á dögunum 500.000 krónur til Krabbameinsfélagsins. Upphæðin er afrakstur af einstaklega vel heppnuðu Konukvöldi sem þau stóðu fyrir í tilefni af Bleikum október. Krabbameinsfélagið þakkar kærlega fyrir stuðninginn, sem kemur að góðum notum.

Lesa meira

4. des. 2023 : Ný rannsókn styður við einstaklingssniðna meðferð

Ný íslensk rannsókn sem birtist í dag í npj Breast Cancer og var unnin í samstarfi Krabbameinsfélagsins við meinafræðideild og krabbameinslækningadeild Landspítala, og við Háskóla Íslands. 

Lesa meira

2. des. 2023 : Taktu þátt í skemmtilegum jólaleik

Litríkt, jólalegt og hollt á borðið þitt. Krabbameinsfélagið í samstarfi við Banana og Hagkaup óska eftir jólalegum útfærslum á framsetningu á grænmeti, ávöxtum og berjum til að nýta á jólaborðið eða veislubakkann. Veglegir vinningar í boði.

Lesa meira

1. des. 2023 : Minningarorð um Jón Þorgeir Hallgrímsson

Jón Þorgeir Hallgrímsson, læknir, fyrrverandi formaður Krabbameinsfélags Íslands og Krabbameinsfélags Reykjavíkur lést þann 21. nóvember sl., 92 ára að aldri. Jóns Þorgeirs er minnst hjá Krabbameinsfélaginu með mikilli virðingu og þakklæti. Aðstandendum vottar félagið innilega samúð. 

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?