Sigriður Sólan Guðlaugsdóttir 4. feb. 2020

Ég skil þig - vitundarvakning um jafningjastuðning

Í dag er Alþjóðlegi krabbameinsdagurinn. Af því tilefni beinir Krabbameinsfélagið sjónum að mikilvægi jafningjastuðnings og hrindir af stað í samvinnu við Kraft vitundarvakningunni „Ég skil þig“ þar sem stuðningsfulltrúar deila reynslu sinni.

Stuðningsnet Krabbameinsfélagsins og Krafts samanstendur af um það bil 100 stuðningsfulltrúum sem hafa mismunandi reynslu af því að greinast með krabbamein, eða að vera aðstandandi einhvers sem greinist. Þeir sem veita stuðninginn sækja námskeið og eru sjálfboðaliðar sem nýta reynslu sína til að miðla þekkingu til annarra og hlusta á þá sem leita eftir stuðningi.

https://youtu.be/J8e-bwAifc4

„Ég skil þig“ herferðin fer að mestu fram á samfélagsmiðlum og á heimasíðum Krabbameinsfélagsins og Krafts. Næstu tvær vikur verða birtar sögur fólks sem hefur þegið og veitt jafningjastuðning í gegnum Stuðningsnetið. Markmiðið er að opna umræðuna og kynna Stuðningsnetið fyrir þeim sem gætu haft gagn af. 

Hvar fær ég stuðning?

Ef þú hefur áhuga á að ræða við stuðningsfulltrúa getur þú haft samband í síma 866 9618 alla virka daga frá kl. 8:30 til 16:30. Þorri Snæbjörnsson sálfræðingur svarar beiðnum um jafningjastuðning. Einning er hægt að senda inn beiðni með því að smella á hlekkinn hér eða senda tölvupóst á thorri@krabb.is.  

Nánari upplýsingar um Stuðningsnetið er að finna hér


Fleiri nýjar fréttir

9. jún. 2023 : Láttu mig vita ef ég get gert eitthvað fyrir þig

Þegar einhver í kringum okkur greinist með krabbamein er eðlilegt að upplifa óöryggi. þótt flestir vilji leggja sitt af mörkum til að vera til staðar getur óttinn við að segja ekki réttu hlutina eða að vita ekki hvað á að segja leitt til þess að jafnvel verði minna samband við viðkomandi en áður.

Lesa meira

30. maí 2023 : Bylting - hálfur milljarður til krabbameinsrannsókna

Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins hefur frá stofnun sjóðsins árið 2015 styrkt 41 krabbameinsrannsókn um samanlagt 384 miljónir króna. Næsta úthlutun úr sjóðnum verður í júní næstkomandi.

Lesa meira

30. maí 2023 : Krabbameinsskimanir – mikið fyrir lítið

Áratugir eru síðan skimanir fyrir legháls- og brjóstakrabbameini voru teknar upp á Íslandi. Þær hafa fyrir löngu sannað gildi sitt þó þær veiti aldrei fullkomna vörn. Konur hér á landi hafa með afgerandi hætti sýnt að þær kunna að meta aðgengi að þeim.

Lesa meira

30. maí 2023 : Á Ís­landi greinast um 1800 manns á hverju ári með krabba­mein

Þeir gætu verið færri. Þó að ekki sé hægt að koma í veg fyrir öll krabbamein sýna rannsóknir að áhættuþættir margra krabbameina tengjast lífsstíl. Með bættri lýðheilsu þjóðar er hægt að fækka verulega ákveðnum krabbameinum.

Lesa meira

28. maí 2023 : Lokað 30. maí í ráðgjafarþjónustu vegna vinnufundar ráðgjafarteymis

Lokaða verður hjá ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins þriðjudaginn 30. maí vegna vinnufundar ráðgjafarteymis. Hægt er að senda fyrirspurnir og erindi á radgjof@krabb.is og er þeim svarað eins fljótt og hægt er.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?