Dregið á aðfangadag í jólahappdrætti Krabbameinsfélagsins
Nú hafa verið sendir út miðar í jólahappdrætti Krabbameinsfélagsins . Að þessu sinni fá konur senda miða og eru vinningar 226 talsins að verðmæti um 39,4 milljónir króna. Fyrsti og annar aðalvinningurinn eru Kia Cee‘d Sportswagon 1.0 Kappa að verðmæti tæpar 3,1 milljón króna.Þriðji og fjórði aðalvinningurinn eru greiðsla upp í bifreið eða íbúð að verðmæti ein milljón króna. Níutíu vinningar eru í formi úttekta hjá ferðaskrifstofu eða verslun, hver að verðmæti 200 þúsund krónur. Einnig eru 132 vinningar í formi úttekta hjá ferðaskrifstofu eða verslun, hver að verðmæti 100 þúsund krónur. Vinningarnir eru skattfrjálsir. Dregið verður 24. desember.
Krabbameinsfélagið hvetur stuðningsmenn sína til að bregðast vel við og kaupa heimsenda miða eða kaupa miða í netverslun Krabbameinsfélagsins.
Nánari upplýsingar: https://www.krabb.is/leggdu-okkur-lid/happdraetti