Guðmundur Pálsson 2. jún. 2019

Dregið 17. júní í sumar­happ­drætti Krabba­meins­félags­ins - stuðn­ingur við marg­þætta starf­semi

Nú hafa verið sendir út miðar í sumarhappdrætti Krabbameinsfélagsins. Í því fá karlmenn heimsenda miða. Vinningar eru að þessu sinni 280 talsins að verðmæti um 46,8 milljónir króna. 

Aðalvinningurinn er Jaguar E-Pace 150D AWD að verðmæti 6,9 milljónir króna frá bílaumboðinu BL. Þrír vinningar eru greiðsla upp í bifreið eða íbúð að verðmæti ein milljón króna. Vinningar í formi úttekta hjá ferðaskrifstofu eða verslun, hver að verðmæti 200 þúsund krónur, eru 115 talsins. Einnig eru 155 vinningar í formi úttekta hjá ferðaskrifstofu eða verslun, hver að verðmæti 100 þúsund krónur. Vinningarnir eru skattfrjálsir. Dregið verður 17. júní.

Allt frá árinu 1955 hefur Krabbameinsfélagið staðið fyrir happdrætti sem hefur verið ein helsta tekjulind félagsins og stuðlað mjög að uppbyggingu þess og þróun. Fræðsla um krabbamein og krabbameins­varnir, útgáfa fræðslurita, tóbaksvarnir og stuðningur við krabbameinssjúklinga eru allt þættir í starfsemi félagsins sem byggjast á fjárhagsstuðningi við félagið.

Krabbameinsfélagið hvetur stuðningsmenn sína til að bregðast vel við og kaupa heimsenda miða. Happdrættismiðarnir eru sendir sem greiðsluseðlar til að auðvelda þeim sem vilja taka þátt í happdrættinu að greiða miðana í heimabanka/netbanka og eiga jafnframt möguleika á glæsilegum vinningum. Miðar eru einnig til sölu á skrifstofu Krabbameinsfélagins að Skógarhlíð 8. Upplýsingar eru gefnar í síma 540 1917. Einnig má hafa samband ef óskað er eftir að borga með greiðslukorti. Krabbameinsfélagið hefur haft það fyrir venju í marga áratugi að hringja í vinningshafa heimsendra miða og tilkynna þeim um vinninga. Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins hefur umsjón með framkvæmd og rekstri happdrættis Krabbameinsfélagsins.

Ár hvert greinast að meðaltali um 1.600 manns með krabbamein hér á landi. Lífslíkur krabba­meins­sjúklinga hafa aukist mjög mikið og er það þakkað forvörnum, betri skilningi á orsökum krabbameins, greiningu á fyrri stigum og markvissari meðferð. Nú eru um 15.000 einstaklingar á lífi sem hafa fengið krabbamein. Þriðji hver Íslendingur fær krabbamein einhvern tíma á lífsleiðinni. Um fjórðung dauðsfalla á Íslandi má rekja til krabbameins.

Happdraettismidi-vor-2019


Fleiri nýjar fréttir

16. apr. 2024 : Krabba­meins­skráning á Íslandi í 70 ár - Afmælis­málþing

Í tilefni af 70 ára afmæli krabbameinsskráningar á Íslandi býður Krabbameinsfélagið til afmælismálþings.

Lesa meira

16. apr. 2024 : Með þínum stuðningi getum við gert svo ótal margt!

Krabbameinsfélagið þakkar öllum þeim fjölmörgu sem lögðu félaginu lið í Mottumars, árverkni- og fjáröflunarátaki félagsins, í ár. Við erum hrærð yfir þeirri velvild, samkennd og hlýju sem við fundum svo vel fyrir. Öll starfsemi félagsins er rekin fyrir sjálfsaflafé og því er stuðningur almennings og fyrirtækja forsenda fyrir starfinu.

Lesa meira

12. apr. 2024 : Saga Ómars Einarssonar

Ómar fékk krabbamein í háls, árið 2008, á sama tíma og Geir H. Haarde blessaði Ísland. Hann var geislaður í upphafi og síðar skorinn. Í framhaldinu var honum bent á að hitta Ragnar Davíðsson, formann félagsins Ný rödd, sem er eitt af aðildarfélögum Krabbameinsfélagsins. Ragnar hafi hjálpað sér og öðrum mikið.

Lesa meira

8. apr. 2024 : Frábær þátttaka í Skegg­keppni Mottu­mars 2024

Þátttakendur í Skeggkeppni Krabbameinsfélagsins þetta árið voru 360 talsins og alls söfnuðust rétt rúmlega 7,3 milljónir króna. Krabbameinsfélagið þakkar öllum þeim sem tóku þátt og öllum sem styrktu.

Lesa meira

25. mar. 2024 : Saga Sigurgeirs Líndal Ingólfssonar

Sigurgeir segir að fræðslan og kynningin í kringum Mottumars sé þýðingarmikil og hafi ýtt við honum þegar einkenni gerðu vart við sig og gert það að verkum að hann fór til læknis. Einkennin voru ekki ólík þvagfærasýkingu en það var einmitt svarið sem hann fékk fyrst þegar hann leitaði sér hjálpar.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?