Dregið 17. júní í sumarhappdrætti Krabbameinsfélagsins - Stuðningur við margþætta starfsemi
Nú hafa verið sendir út miðar í sumarhappdrætti Krabbameinsfélagsins. Í því fá karlmenn heimsenda miða. Vinningar eru að þessu sinni 280 talsins að verðmæti um 46,8 milljónir króna.
- Aðalvinningurinn er Kia Niro Plug-in Hybrid EX frá bílaumboðinu Öskju að verðmæti um 4,2 milljónir króna. Þrír vinningar eru greiðsla upp í bifreið eða íbúð að verðmæti ein milljón króna. Vinningar í formi úttekta hjá ferðaskrifstofu eða verslun, hver að verðmæti 200 þúsund krónur, eru 120 talsins. Einnig eru 156 vinningar í formi úttekta hjá ferðaskrifstofu eða verslun, hver að verðmæti 100 þúsund krónur. Vinningarnir eru skattfrjálsir. Dregið verður 17. júní.
Allt frá árinu 1955 hefur Krabbameinsfélagið staðið fyrir happdrætti sem hefur verið ein helsta tekjulind félagsins og stuðlað mjög að uppbyggingu þess og þróun. Fræðsla um krabbamein og krabbameinsvarnir, útgáfa fræðslurita, tóbaksvarnir og stuðningur við krabbameinssjúklinga eru allt þættir í starfsemi félagsins sem byggjast á fjárhagsstuðningi við félagið.
Krabbameinsfélagið hvetur stuðningsmenn sína til að bregðast vel við og kaupa heimsenda miða. Happdrættismiðarnir eru sendir sem greiðsluseðlar til að auðvelda þeim sem vilja taka þátt í happdrættinu að greiða miðana í heimabanka/netbanka og eiga jafnframt möguleika á glæsilegum vinningum. Miðar eru einnig til sölu á skrifstofu Krabbameinsfélagins að Skógarhlíð 8. Upplýsingar eru gefnar í síma 540 1917. Einnig má hafa samband ef óskað er eftir að borga með greiðslukorti. Krabbameinsfélagið hefur haft það fyrir venju í marga áratugi að hringja í vinningshafa heimsendra miða og tilkynna þeim um vinninga. Krabbameinsfélag Reykjavíkur hefur umsjón með framkvæmd og rekstri happdrættis Krabbameinsfélagsins.
Ár hvert greinast að meðaltali um 1.600 manns með krabbamein hér á landi. Lífslíkur krabbameinssjúklinga hafa aukist mjög mikið og er það þakkað forvörnum, betri skilningi á orsökum krabbameins, greiningu á fyrri stigum og markvissari meðferð. Nú eru um 14.500 einstaklingar á lífi sem hafa fengið krabbamein. Þriðji hver Íslendingur fær krabbamein einhvern tíma á lífsleiðinni. Um fjórðung dauðsfalla á Íslandi má rekja til krabbameins.