Ása Sigríður Þórisdóttir 30. okt. 2022

Bleikur dagur í Borgarholtsskóla

Á hálftíma söfnuðust 50 þúsund krónur sem afhentar voru Krabbameinsfélaginu. Krabbameinsfélagið þakkar nemendum kærlega fyrir þeirra góða stuðning.

Í tilefni af bleika deginum ákvað nemendafélag Borgarholtsskóla að skreyta skólann í bleikum lit, hvetja nemendur til að mæta í bleiku og svo var Bleiki pardusinn sýndur í hádegishléinu. Möndlunefndin, ein af nefndum nemendafélagsins, tók sig til og keypti litlar bleikar möndlukökur og bleikan Kristal og seldi í hádegishléi til styrktar Krabbameinsfélaginu.

Borgarholtsskoli-2022

Ákveðið var að ef fleiri en 100 kökur seldust yrði hár Ástu Laufeyjar aðstoðarskólameistara litað bleikt. Það er óhætt að segja að nemendur hafi svo sannarlega sýnt lit og styrkt góðan málstað auk þess að ná markmiðinu varðandi söluna á innan við hálftíma. Þannig að hár Ástu aðstoðarskólameistara varð bleikt það sem eftir lifði dags eins og sjá má á myndbandinu sem hér fylgir.  

Krabbameinsfélagið þakkar nemendum kærlega fyrir þeirra góða stuðning.

  • Stelpurnar sem stóðu fyrir söfnuninni voru þær: Bergdís Anna Magnúsdóttir (komst ekki í myndatökuna og afhendinguna), Dís Bjarnadóttir, Elísa Dís Sigfinnsdóttir og Margrét Áslaug Bjarnhéðinsdóttir.

 


Fleiri nýjar fréttir

5. des. 2023 : Aðstoð við að velja mat sem eykur heilbrigði og vellíðan

Við þurfum hjálp! Ákall til matvælaframleiðenda og sölu- og markaðsaðila matvæla. Mörg fyrirtæki standa sig vel þegar kemur að markaðssetningu á mat og drykkjarvöru. Sum fyrirtæki sem bjóða upp á heilsueflandi mat en einnig mat- og drykkjarvörur sem geta haft neikvæð áhrif á heilsu hlífa til dæmis börnum við markaðssetningu á slíkum vörum.

Lesa meira

4. des. 2023 : Kírópraktorstöðin styrkir Bleiku slaufuna

Kírópraktorstöðin afhenti á dögunum 500.000 krónur til Krabbameinsfélagsins. Upphæðin er afrakstur af einstaklega vel heppnuðu Konukvöldi sem þau stóðu fyrir í tilefni af Bleikum október. Krabbameinsfélagið þakkar kærlega fyrir stuðninginn, sem kemur að góðum notum.

Lesa meira

4. des. 2023 : Ný rannsókn styður við einstaklingssniðna meðferð

Ný íslensk rannsókn sem birtist í dag í npj Breast Cancer og var unnin í samstarfi Krabbameinsfélagsins við meinafræðideild og krabbameinslækningadeild Landspítala, og við Háskóla Íslands. 

Lesa meira

2. des. 2023 : Taktu þátt í skemmtilegum jólaleik

Litríkt, jólalegt og hollt á borðið þitt. Krabbameinsfélagið í samstarfi við Banana og Hagkaup óska eftir jólalegum útfærslum á framsetningu á grænmeti, ávöxtum og berjum til að nýta á jólaborðið eða veislubakkann. Veglegir vinningar í boði.

Lesa meira

1. des. 2023 : Minningarorð um Jón Þorgeir Hallgrímsson

Jón Þorgeir Hallgrímsson, læknir, fyrrverandi formaður Krabbameinsfélags Íslands og Krabbameinsfélags Reykjavíkur lést þann 21. nóvember sl., 92 ára að aldri. Jóns Þorgeirs er minnst hjá Krabbameinsfélaginu með mikilli virðingu og þakklæti. Aðstandendum vottar félagið innilega samúð. 

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?