Ása Sigríður Þórisdóttir 3. okt. 2022

Bleika slaufan – Sýnið lit!

Grein birtist á Visir.is 1. október 2022.

Í Bleiku slaufunni í ár beinir Krabbameinsfélagið athyglinni að forvörnum gegn krabbameinum, hvað hægt er að gera til að draga úr áhættu á að fá krabbamein. Krabbameinsfélagið hafði fyrir áratugum síðan frumkvæði að því að hefja skimanir fyrir krabbameinum hjá konum. Á hverju ári verða skimanirnar til þess að bjarga lífi fjölda kvenna.

Þegar haustlitirnir með bleikum tónum leggjast yfir landið er Bleika slaufan skammt undan. Í rúm 20 ár hefur hlýja, kærleikur og samstaða fylgt Bleiku slaufunni sem smellpassar við árstíðina.

Í árslok ársins 2020 voru hér á landi 9.056 konur á lífi sem einhvern tíma hafa fengið krabbamein. Þeim hafði fjölgað um 110% frá aldamótum, árið 2000 voru þær 4.297.

Að meðaltali greinist nú 871 kona með krabbamein á ári en um aldamótin voru þær 538. Það jafngildir 61% aukningu.

Í Bleiku slaufunni, árlegu átaki Krabbameinsfélagsins beinum við sjónum að þessum konum.

Fimm ára lífshorfur kvenna sem fá krabbamein batna stöðugt og eru með því besta sem gerist. Að batahorfur aukist er auðvitað stórkostlegt. Ekki má hins vegar gleyma þeim fjölda kvenna sem við missum á hverju ári. Þrátt fyrir miklar framfarir í meðferð ákveðinna krabbameina, til dæmis brjóstakrabbameina og að lífshorfur hafi gjörbreyst eru krabbamein enn orsök flestra ótímabærra dauðsfalla og leiða fólk alltof oft hratt til dauða. Margar þeirra kvenna sem hafa fengið krabbamein búa við skert lífsgæði, vegna langvarandi aukaverkana eða fylgikvilla.

Ásdís Ingólfsdóttir, framhaldsskólakennari og rithöfundur leggur Bleiku slaufunni lið í ár og gefur okkur innsýn í sína reynslu af að hafa tvívegis fengið brjóstakrabbamein, fyrir 15 og 20 árum síðan. Ljóðin hennar eru einstök og þar er að finna flestar tilfinningar, gleði, sorg og von oft með kaldhæðnum undirtóni. Krabbameinsfélagið endurútgefur nú ljóðabók Ásdísar, Ódauðleg brjóst.

Allra mikilvægast er að koma í veg fyrir krabbamein. Rannsóknir sýna að 4 af hverjum 10 krabbameinum tengjast lífsstíl og er því hægt að fyrirbyggja. Það er hins vegar auðveldar sagt en gert og gerist ekki af sjálfu sér.

Krabbameinsforvarnir eru fyrst og fremst samfélagslegt mál og til þess að árangur náist þurfa ótal aðilar að vinna saman. Með samstilltu átaki stjórnvalda, Krabbameinsfélagsins og fleiri aðila hefur næstum tekist að útrýma tóbaksreykingum. Árangurinn sést meðal annars í því að frá árinu 2015 hefur nýgengi lungnakrabbameins hjá konum lækkað umtalsvert.

Í Bleiku slaufunni í ár beinir Krabbameinsfélagið athyglinni að forvörnum gegn krabbameinum, hvað hægt er að gera til að draga úr áhættu á að fá krabbamein. Krabbameinsfélagið hafði fyrir áratugum síðan frumkvæði að því að hefja skimanir fyrir krabbameinum hjá konum. Á hverju ári verða skimanirnar til þess að bjarga lífi fjölda kvenna. Þau líf gætu verið enn fleiri ef fleiri konur nýttu boð í skimanir. Sérstök áhersla er núna til að hvetja konur til að nýta boð í skimanir. Eftir mikið átak Krabbameinsfélagsins til að auka mætingu kvenna á árunum 2018 og 2019, sem skilaði miklum árangri dró verulega úr mætingu kvenna á árunum 2020 og 2021 vegna Covid og flutnings skimananna frá félaginu til opinberra stofnana. Nú horfir sem betur fer til betri vegar en betur má ef duga skal. Ástæða er til að hvetja stjórnvöld til að flýta því að taka upp nútímalegt kerfi við boð kvenna í skimanir, það myndi örugglega auka þátttökuna. Annað mikilvægt atriði er að krabbameinsskimanir verði gjaldfrjálsar. Misræmi er í að leghálsskimanir kosta 500 krónur hjá Heilsugæslu en fullt gjald fyrir brjóstaskimun er rúmar 5.000 krónur. Konurnar í landinu hvetjum við eindregið til að panta tíma í skimun þegar þær fá boð. Skimun tekur stuttan tíma og þeim mínútum er sannarlega vel varið. Nauðsynlegt er að þó að nefna að reglubundin þátttaka í skimun veitir ekki tryggingu gegn krabbameinum.

Krabbameinsfélagið hefur staðið fyrir Bleiku slaufunni frá árinu 2000. Með kaupum á slaufunni og fjölbreyttum stuðningi í rúm 20 ár hefur almenningur og fyrirtæki í landinu gert félaginu kleift að vinna að markmiðum sínum: að fækka þeim sem greinast með krabbamein, fjölga þeim sem lifa af og bæta líf þeirra sem fá krabbamein og aðstandenda þeirra.

Krabbameinsfélagið heldur ótrautt áfram í sínu starfi – kaupið Bleiku slaufuna og sýnið þannig lit. 

Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins

  • Grein birtist á Visir.is 1. október 2022.

Fleiri nýjar fréttir

16. apr. 2024 : Krabba­meins­skráning á Íslandi í 70 ár - Afmælis­málþing

Í tilefni af 70 ára afmæli krabbameinsskráningar á Íslandi býður Krabbameinsfélagið til afmælismálþings.

Lesa meira

16. apr. 2024 : Með þínum stuðningi getum við gert svo ótal margt!

Krabbameinsfélagið þakkar öllum þeim fjölmörgu sem lögðu félaginu lið í Mottumars, árverkni- og fjáröflunarátaki félagsins, í ár. Við erum hrærð yfir þeirri velvild, samkennd og hlýju sem við fundum svo vel fyrir. Öll starfsemi félagsins er rekin fyrir sjálfsaflafé og því er stuðningur almennings og fyrirtækja forsenda fyrir starfinu.

Lesa meira

12. apr. 2024 : Saga Ómars Einarssonar

Ómar fékk krabbamein í háls, árið 2008, á sama tíma og Geir H. Haarde blessaði Ísland. Hann var geislaður í upphafi og síðar skorinn. Í framhaldinu var honum bent á að hitta Ragnar Davíðsson, formann félagsins Ný rödd, sem er eitt af aðildarfélögum Krabbameinsfélagsins. Ragnar hafi hjálpað sér og öðrum mikið.

Lesa meira

8. apr. 2024 : Frábær þátttaka í Skegg­keppni Mottu­mars 2024

Þátttakendur í Skeggkeppni Krabbameinsfélagsins þetta árið voru 360 talsins og alls söfnuðust rétt rúmlega 7,3 milljónir króna. Krabbameinsfélagið þakkar öllum þeim sem tóku þátt og öllum sem styrktu.

Lesa meira

25. mar. 2024 : Saga Sigurgeirs Líndal Ingólfssonar

Sigurgeir segir að fræðslan og kynningin í kringum Mottumars sé þýðingarmikil og hafi ýtt við honum þegar einkenni gerðu vart við sig og gert það að verkum að hann fór til læknis. Einkennin voru ekki ólík þvagfærasýkingu en það var einmitt svarið sem hann fékk fyrst þegar hann leitaði sér hjálpar.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?