Sigriður Sólan Guðlaugsdóttir 30. sep. 2019

Bleika slaufan 2019: Þú ert ekki ein

Á morgun, þriðjudaginn 1. október, hefst árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélags Íslands, Bleika slaufan, undir slagorðinu „Þú ert ekki ein“. 

Í átakinu er lögð áhersla á mikilvægi stuðnings og vináttu þegar kona greinist með krabbamein, þegar tilveran breytist snögglega og við tekur tími sem getur reynst afar erfiður. Stuðningur fjölskyldu og vina skiptir miklu máli í öllu ferlinu, allt frá greiningu, en einnig faglegur og félagslegur stuðningur sem Krabbameinsfélagið veitir án endurgjalds. Rannsóknir sýna að þeim vegnar betur sem fá stuðning í ferlinu.

Bleika slaufan er með nokkuð breyttu sniði í ár og í fyrsta sinn er Bleika slaufan ekki næla heldur hálsmen.

„Það var kominn á breytingar eftir 12 ár í formi nælu,“ segir Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins: „Við höfum reglulega heyrt af áhuga stuðningsmanna og kvenna, á að fá annars konar skartgrip og við erum viss um að þetta gullfallega hálsmen höfði til enn breiðari hóps. Við hlökkum til að sjá fólk á öllum aldri ganga með hálsmenið og sýna þannig stuðning við konur og krabbamein í verki”.

Guðbjörg Ingvarsdóttir, skartgripahönnuður í Aurum, hannar slaufuna. Hún lýsir hönnun slaufunnar þannig: „Blómið í slaufunni táknar jákvæðni og vellíðan og hringurinn táknar kvenlega orku og vernd.“ Guðbjörg leggur áherslu á að hálsmen passi bæði konum og körlum: „Enda geta karlmenn verið alveg ófeimnir við að bera Bleiku slaufuna í ár.“

Bleika slaufan kostar 2.500 krónur og er seld á bleikaslaufan.is og hjá fjölmörgum verslunum um land allt. Að vanda verður hátíðarslaufa Bleiku slaufunnar til sölu í takmörkuðu upplagi, en einnig hafa tvær gullslaufur verið hannaðar sem boðnar verða upp í fjáröflunarskyni.

„Annars vegar er um að ræða gullhálsmen og hins vegar gullnælu sem er sérstaklega ætluð þeim sem sakna nælunnar,“ segir Guðbjörg.

Bein útsending frá Bíókvöldi Bleiku slaufunnar
Átakinu verður formlega ýtt úr vör 1. október á Bíókvöldi Bleiku slaufunnar þegar Downton Abbey verður sýnd á sérstakri bleikri sýningu í stóra sal Háskólabíós. Húsið verður opnað kl. 19 og í anddyri verður Bleik stemmning, þar sem Krabbameinsfélagið kynnir helstu starfsemi sína og styrktaraðilar kynna vörur sínar til stuðnings átakinu. Bein útsending verður frá dagskrá kvöldsins á netinu fram að bíósýningunni. Dagskráin hefst klukkan 20:00 og kynnar kvöldsins eru leikkonurnar Dóra Jóhannsdóttir og Elva Ósk Ólafsdóttir. Hægt er að kaupa miða hér og útsendinguna má sjá á bleikaslaufan.is, á visir.is og samfélagsmiðlum félagsins og nokkurra hagaðila.

Vinkonuklúbbur Krabbameinsfélagsins
Undanfarin 12 ár hefur Krabbameinsfélagið tileinkað októbermánuð baráttu gegn krabbameinum hjá konum. Söfnunarfé Bleiku slaufunnar verður í ár varið til þeirrar fjölbreyttu starfsemi sem Krabbameinsfélagið stendur fyrir, með sérstakri áherslu á krabbamein hjá konum. Konur eru hvattar til að skrá sig í Vinkonuklúbb Krabbameinsfélagsins þar sem þær fá reglulega fræðslumola um fyrirbyggjandi þætti, hvatningu um þátttöku í skimanir og fleira. Skráning og frekari upplýsingar eru á Bleikaslaufan.is.


Fleiri nýjar fréttir

5. des. 2023 : Takk sjálfboðaliðar!

Í dag er alþjóðlegur dagur sjálfboðaliða og Krabbameinsfélagið vill nýta tækifærið og þakka öllum þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum sem leggja sitt af mörkum í þágu félagsins. Í tilefni dagsins fengum við nokkra sjálfboðaliða til að segja okkur frá því hvers vegna þau velja að leggja baráttunni gegn krabbameinum lið.

Lesa meira

5. des. 2023 : Aðstoð við að velja mat sem eykur heilbrigði og vellíðan

Við þurfum hjálp! Ákall til matvælaframleiðenda og sölu- og markaðsaðila matvæla. Mörg fyrirtæki standa sig vel þegar kemur að markaðssetningu á mat og drykkjarvöru. Sum fyrirtæki sem bjóða upp á heilsueflandi mat en einnig mat- og drykkjarvörur sem geta haft neikvæð áhrif á heilsu hlífa til dæmis börnum við markaðssetningu á slíkum vörum.

Lesa meira

4. des. 2023 : Taktu þátt í skemmtilegum jólaleik

Litríkt, jólalegt og hollt á borðið þitt. Krabbameinsfélagið í samstarfi við Banana og Hagkaup óska eftir jólalegum útfærslum á framsetningu á grænmeti, ávöxtum og berjum til að nýta á jólaborðið eða veislubakkann. Veglegir vinningar í boði.

Lesa meira

4. des. 2023 : Kírópraktorstöðin styrkir Bleiku slaufuna

Kírópraktorstöðin afhenti á dögunum 500.000 krónur til Krabbameinsfélagsins. Upphæðin er afrakstur af einstaklega vel heppnuðu Konukvöldi sem þau stóðu fyrir í tilefni af Bleikum október. Krabbameinsfélagið þakkar kærlega fyrir stuðninginn, sem kemur að góðum notum.

Lesa meira

4. des. 2023 : Ný rannsókn styður við einstaklingssniðna meðferð

Ný íslensk rannsókn sem birtist í dag í npj Breast Cancer og var unnin í samstarfi Krabbameinsfélagsins við meinafræðideild og krabbameinslækningadeild Landspítala, og við Háskóla Íslands. 

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?