Sigriður Sólan Guðlaugsdóttir 2. nóv. 2018

Betri þjónusta við þá sem greinast með krabbamein og aðstandendur þeirra

Ráðgjafarþjónustan byggir nýja þjónustu á grunni samstarfsverkefnis við nemendur í Háskólanum í Reykjavík.

Í byrjun ársins leitaði til Krabbameinsfélagsins hópur nemenda frá HR í verkefnastjórnun. Áhugi þeirra beindist að því hvernig væri hægt að koma betur til móts við fólks sem er að greinast með krabbamein og aðstandendur þeirra. Hópurinn leitaði til fólks sem greinst hafði með krabbamein og kallaði eftir upplýsingum um þarfir þeirra í upphafi greiningar og hvernig hægt væri að mæta þeim betur.

Samstarfsverkefni varð grunnurinn að þeirri fræðslu sem Ráðgjafarþjónustan er nú að fara af stað með fyrir þá sem eru að greinast með krabbamein og aðstandendur þeirra.

„Ráðgjafarþjónustan hefur lengi ætlað sér gera betur við þá sem eru að greinast með krabbamein og því var það kærkomið að taka þátt í þessu verkefni með hópnum,“ segir Sigrún Lillie Magnúsdóttir, forstöðukona Ráðgjafarþjónustunnar.

Boðið verður upp á fræðsluna tvisvar í mánuði, á miðvikudögum, annan og fjórða miðvikudag í hverjum mánuði kl. 14:00 – 15:00. Farið verður yfir ýmis mál sem tengjast því að greinast með krabbamein.

Skráning er á radgjof@krabb.is eða í síma 800-4040. Ekkert þátttökugjald.

https://www.krabb.is/radgjof-studningur/hvad-er-i-bodi/vidburdir/varst-thu-ad-greinast-med-krabbamein

Myndin er af starfsfólki Ráðgjafarþjónustunnar.


Fleiri nýjar fréttir

16. apr. 2024 : Krabba­meins­skráning á Íslandi í 70 ár - Afmælis­málþing

Í tilefni af 70 ára afmæli krabbameinsskráningar á Íslandi býður Krabbameinsfélagið til afmælismálþings.

Lesa meira

16. apr. 2024 : Með þínum stuðningi getum við gert svo ótal margt!

Krabbameinsfélagið þakkar öllum þeim fjölmörgu sem lögðu félaginu lið í Mottumars, árverkni- og fjáröflunarátaki félagsins, í ár. Við erum hrærð yfir þeirri velvild, samkennd og hlýju sem við fundum svo vel fyrir. Öll starfsemi félagsins er rekin fyrir sjálfsaflafé og því er stuðningur almennings og fyrirtækja forsenda fyrir starfinu.

Lesa meira

12. apr. 2024 : Saga Ómars Einarssonar

Ómar fékk krabbamein í háls, árið 2008, á sama tíma og Geir H. Haarde blessaði Ísland. Hann var geislaður í upphafi og síðar skorinn. Í framhaldinu var honum bent á að hitta Ragnar Davíðsson, formann félagsins Ný rödd, sem er eitt af aðildarfélögum Krabbameinsfélagsins. Ragnar hafi hjálpað sér og öðrum mikið.

Lesa meira

8. apr. 2024 : Frábær þátttaka í Skegg­keppni Mottu­mars 2024

Þátttakendur í Skeggkeppni Krabbameinsfélagsins þetta árið voru 360 talsins og alls söfnuðust rétt rúmlega 7,3 milljónir króna. Krabbameinsfélagið þakkar öllum þeim sem tóku þátt og öllum sem styrktu.

Lesa meira

25. mar. 2024 : Saga Sigurgeirs Líndal Ingólfssonar

Sigurgeir segir að fræðslan og kynningin í kringum Mottumars sé þýðingarmikil og hafi ýtt við honum þegar einkenni gerðu vart við sig og gert það að verkum að hann fór til læknis. Einkennin voru ekki ólík þvagfærasýkingu en það var einmitt svarið sem hann fékk fyrst þegar hann leitaði sér hjálpar.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?