Árleg ráðstefna samtaka norrænu krabbameinsskránna (ANCR) 2018
Árleg ráðstefna samtaka norrænu krabbameinsskránna (ANCR) fer fram á Íslandi í júní.
Norrænu krabbameinsskrárnar skiptast á um halda árlega ráðstefnu Samtaka norrænna krabbameinsskráa (ANCR).
Í ár verður ráðstefna ANCR haldin á Íslandi, nánar tiltekið á Stracta hóteli á Hellu 13-14 júní.
Best er að skrá sig fyrir 15. mars, eftir það hækkar skráningargjaldið.
Hægt er að skrá sig á síðunni, en þeim sem vilja vera aðeins einn dag er bent á að hafa beint samband við Þórunni Ingólfsdóttur, framkvæmdastjóra Íslandsfunda ehf.