Birna Þórisdóttir 4. mar. 2020

Alþjóðlegi HPV dagurinn er í dag

Krabbamein er ekki smitsjúkdómur. Aftur á móti geta vissar sýkingar aukið líkur á krabbameinum. Það er helst sýking með HPV-veirunni sem veldur krabbameinum á Íslandi. HPV-bólusetning og leghálsskimun draga stórlega úr áhættunni.

Þó að nærri fimmtungur allra krabbameina í heiminum sé af völdum sýkla, eru flestir þeirra afar sjaldgæfir á Íslandi og valda fáum krabbameinum. Það er helst sýking með HPV-veirunni (human papillomavirus) sem veldur krabbameinum á Íslandi. Á síðustu árum hafa að meðaltali 18 konur á ári fengið leghálskrabbamein, sem talið er að orsakist í 99% tilfella af HPV-smiti. Með HPV-bólusetningu, sem er hluti af almennum bólusetningum stúlkna í 7. bekk, dregur verulega úr hættunni á leghálskrabbameini. En þar sem bólusetningin veitir ekki fullkomna vörn ættu bólusettar konur samt sem áður að þiggja boð í leghálsskimun sem hefst við 23 ára aldur.

Alþjóðlegi HPV dagurinn er tileinkaður aukinni vitneskju um HPV og hvatningu um að þiggja bólusetningu og boð í leghálsskimun. 

Hér má nálgast algengar spurningar um HPV-veiruna og svör við þeim.


Fleiri nýjar fréttir

29. sep. 2023 : Slökkti fyrst eld og keypti svo Bleiku slaufuna

Það hefur vonandi ekki farið framhjá neinum að sala Bleiku slaufunnar hófst á miðnætti í dag, 29. september. Nágranni Krabbameinsfélagsins, Bergrún Ingimarsdóttir, varð fyrst til að tryggja sér slaufu ársins. Það mátti þó litlu muna að það tækist ekki vegna elds sem hún þurfti að ráða niðurlögum að.

Lesa meira

27. sep. 2023 : Bleika slaufan 2023

Gullsmiðirnir Lovísa Halldórsdóttir (by lovisa) og Unnur Eir Björnsdóttir (EIR) eru hönnunarteymið á bak við Bleiku slaufuna í ár. Það er óhætt að segja að þeim hafi tekist ætlunarverk sitt, en slaufan í ár er sú bleikasta sem við höfum séð lengi

Lesa meira

26. sep. 2023 : "Mikilvægt að segja líka frá því sem gengur vel"

Styttri legutími, skjótari bati, lægri dánartíðni og betri lifun. Ný aðferðafræði við skurðaðgerðir við lungnakrabbameini var tekin upp nærri því á einni nóttu og hefur gefið reglulega góða raun í baráttunni gegn lungnakrabbameini. Tómas Guðbjartsson skurðlæknir og Viktor Ásbjörnsson læknanemi segja hér frá byltingarkenndri þróun í skurðaðgerðum við lungnakrabbameini og mikilvægi rannsókna og stuðnings við þær fyrir framþróun í málaflokkinum. 

Lesa meira

26. sep. 2023 : Takk fyrir komuna

Nýafstaðið málþing í tilefni af alþjóðadegi krabbameinsrannsókna vakti greinilega forvitni margra, því húsfyllir var í Skógarhlíðinni auk þess sem fjölmargir fylgdust með í streymi. Krabbameinsfélagið vill koma á framfæri kærum þökkum til allra sem tóku þátt.

Lesa meira
Elísa Dögg Björnsdóttir frá TVG-Zimsen, Árni Reynir Alfredsson, forstöðumaður markaðsmála og  fjáröflunar hjá Krabbameinsfélaginu og Magnús Ingi Guðmundsson frá IDÉ House of brands, sem sér um framlei

25. sep. 2023 : Nú er það bleikt!

Að baki átaki eins og Bleiku slaufunni búa fjölmörg handtök og undirbúningur hefst mörgum mánuðum áður en afurðin berst landsmönnum í hendur og hjörtu. Það er því alltaf stór stund þegar við fáum sjálfa slaufuna í hús og niðurtalningin fyrir upphaf átaksins hefst formlega.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?