Þráinn: Mikilvægt að finna að maður er ekki einn

  • Þráinn Þorvaldsson

Þráinn Þorvaldsson er 75 ára gamall, en var 61 árs þegar hann greindist með krabbamein í blöðruhálskirtli. 

„Ég greindist 61 árs með blöðruhálskirtilskrabbamein. Ég gat lifað án þess að fara í meðferð en mér var ekki spáð bjartri framtíð og við sögðum engum frá þessu. Á þeim tíma var engan stuðning að fá og ég hafði engan til að tala við. Það sem veitti mér mestan stuðning var að ég fór á spjallvef í Bandaríkjunum þar sem hægt var að senda inn fyrirspurnir og menn svöruðu og veittu ráðleggingar. Ég safnaði fjölmörgum upplýsingum og menn fóru svo að fá upplýsingar hjá mér og hringja í mig. Þá fann ég að þessi stuðningur skiptir miklu máli. Bara það að einstaklingur hafi einhvern til að tala við sem er búinn að feta þessa sömu slóð léttir mjög áhyggjur þeirra.“

https://www.youtube.com/watch?v=I0ro7w653X4

„Það má líkja þessu við það þegar þú ferð í fjallgöngu. Svo skellur á þoka. Þú ert með leiðarlýsingu og allt en veist ekkert hvert þú átt að fara. Þá kemur einhver einstaklingur upp að hliðinni á þér í þokunni og segir “ég er búinn að fara þetta ég veit hver leiðin er. Ég skal hjálpa þér. Ég skal styðja þig og þú getur spurt mig spurninga sem þú vilt.” Þetta er svona sem jafningjafræðslan og Stuðningsnetið er. Þú hefur einhvern við hliðina á þér, einhvern sem þú getur talað við, sem getur létt af þér áhyggjum og stutt þig áfram í gegnum þokuna.

Ég held að flestir sem greinast með blöðruhálskirtilskrabbamein hverfi inn í neikvæðar hugsanir. Þeir hugsi ekki um að það séu jafnvel jákvæðir hlutir sem að gerast kannski í kjölfarið. Þetta breytir þínu lífi og lífsviðhorfum. Þannig að ef þú talar við aðra þá mun viðkomandi kannski opna fyrir þér þann heim að það er ekki allt svart í kringum þetta.“

Þráinn er stuðningsfulltrúi í Stuðningsnetinu og formaður Framfarar, samtaka karla sem greinst hafa með blöðruhálskirtilskrabbamein.

 


Fleiri sögur

Kristín Þórsdóttir

4. feb. 2020 : Kristín: Það krefst mikils styrks að leita sér stuðnings

Kristín Þórsdóttir var 33ja ára þegar hún missti manninn sinn úr krabbameini en þau eiga þrjú börn saman. Veikindin tóku 11 ár og tóku mikið á. Nú, tveimur árum seinna, þykir Kristínu dýrmætt að hægt sé að leita stuðnings hjá einhverjum sem skilur út frá eigin reynslu.

Lesa meira
Anna Lára Magnúsdóttir

4. feb. 2020 : Anna Lára: Maður er ekki einn í heiminum

Anna Lára Magnúsdóttir er 47 ára og greindist fyrir sjö árum með brjóstakrabbamein. Henni fannst jafningjastuðningurinn veita sér von um að hún fengi gamla lífið sitt til baka. 

Lesa meira
Anna Maria Milosz

4. feb. 2020 : Anna María: Svo gott að pústa við einhvern sem skilur

Anna María greindist 34. ára með Non-Hodgkins eitilfrumukrabbamein en gaf sér ekki tíma til að hitta stuðningsfulltrúa. Hún sér eftir því í dag og telur mikilvægt að þiggja jafningjastuðning.

Lesa meira
Haukur Gunnarsson

4. feb. 2020 : Haukur: Samtalið er magnað fyrirbæri

Haukur Gunnarsson er sjötugur og greindist með krabbamein í blöðruhálskirtli fyrir þremur árum. Hann og kona hans hafa sótt stuðning í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins sem hefur auðveldað þeim að tala saman um veikindin og áskoranirnar sem þeim fylgja. 

Lesa meira
Ragnheiður Guðmundsdóttir

4. feb. 2020 : Ragnheiður: Greiningin breytti lífi mínu

Ragnheiður Guðmundsdóttir er 37 ára og greindist með krabbamein í lífhimnu og lifur fyrir ári síðan. Kvíði, áfallastreita og þunglyndi fylgdu veikindunum og hún vill hjálpa öðrum með stuðningi í Stuðningsnetinu.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?