Ingibjörg: Óttuðust dauðann fyrst, en eru sprelllifandi

  • Ingibjörg Þorgerður Þorleifsdóttir

Ingibjörg Þorgerður Þorleifsdóttir er 65 ára. Hún hefur tvívegis greinst með lungnakrabbamein, fyrst 50 ára og svo 64 ára. Hún ákvað að gerast stuðningsfulltrúi og veita stuðning sem hana vantaði í sínu ferli.

„Stuðningsnetið gerir fólki svo gott.“

„Þegar ég greindist með krabbamein þá var ég svo ein. Ég hélt það væri eitthvað eða einhver sem ég gæti leitað til en það var bara enginn sem ég gat talað við. Það varð til þess að ég ákvað að verða stuðningsfulltrúi í Stuðningsnetinu þegar það var stofnað svo ég gæti verið til staðar fyrir aðra í sambærilegum sporum.

Óttinn og vonin sem kviknar við að hitta einhvern með svipaða reynslu

Ég held að fólk sem hefur lent í svona skilji fólk sem er að greinast miklu betur heldur en fagfólkið. Fagfólkið reynir sitt besta að skilja þetta líka en ef þú hefur ekki lent í þessu þá getur þú ekki sett þig almennilega í þessi spor. Ég hef hitt nokkrar konur sem stuðningsfulltrúi og bara það að sjá mig lifandi eftir öll þessi ár gerði mjög mikið fyrir þær. Þær voru vissar um að þær myndu deyja en þær eru allar sprelllifandi í dag, 12 árum seinna.

Mér datt sjálfri aldrei í hug að ég myndi deyja. Læknirinn sagði við mig löngu seinna að hann hefði ekki veðjað við mig 10 krónum um að ég myndi lifa árið af vegna þess að þetta var búið að dreifa sér, var ekki bara í lungunum. Ég ákvað að halda áfram að lifa þessu daglega lífi. Ég fór í vinnuna, ég átti unglinga og við létum lífið hafa eins eðlilegan gang og hægt var. Svo náði ég mér mjög vel. Það var meira sjokk að greinast aftur fyrir ári síðan. Læknirinn sagði við mig að það væri alltaf aðeins meiri hætta á að ég myndi greinast aftur. Ég var með mjög góðan lækni og á honum lífið að launa. Ég er búin að vera í eftirliti árlega en meinið uppgötvaðist bara fyrir tilviljun. Sem betur fer var bara hægt að skera það í burtu í þetta skiptið.“

Ingibjörg er stuðningsfulltrúi í Stuðningsnetinu 



Fleiri sögur

Kristín Þórsdóttir

4. feb. 2020 : Kristín: Það krefst mikils styrks að leita sér stuðnings

Kristín Þórsdóttir var 33ja ára þegar hún missti manninn sinn úr krabbameini en þau eiga þrjú börn saman. Veikindin tóku 11 ár og tóku mikið á. Nú, tveimur árum seinna, þykir Kristínu dýrmætt að hægt sé að leita stuðnings hjá einhverjum sem skilur út frá eigin reynslu.

Lesa meira
Anna Lára Magnúsdóttir

4. feb. 2020 : Anna Lára: Maður er ekki einn í heiminum

Anna Lára Magnúsdóttir er 47 ára og greindist fyrir sjö árum með brjóstakrabbamein. Henni fannst jafningjastuðningurinn veita sér von um að hún fengi gamla lífið sitt til baka. 

Lesa meira
Anna Maria Milosz

4. feb. 2020 : Anna María: Svo gott að pústa við einhvern sem skilur

Anna María greindist 34. ára með Non-Hodgkins eitilfrumukrabbamein en gaf sér ekki tíma til að hitta stuðningsfulltrúa. Hún sér eftir því í dag og telur mikilvægt að þiggja jafningjastuðning.

Lesa meira
Haukur Gunnarsson

4. feb. 2020 : Haukur: Samtalið er magnað fyrirbæri

Haukur Gunnarsson er sjötugur og greindist með krabbamein í blöðruhálskirtli fyrir þremur árum. Hann og kona hans hafa sótt stuðning í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins sem hefur auðveldað þeim að tala saman um veikindin og áskoranirnar sem þeim fylgja. 

Lesa meira
Ragnheiður Guðmundsdóttir

4. feb. 2020 : Ragnheiður: Greiningin breytti lífi mínu

Ragnheiður Guðmundsdóttir er 37 ára og greindist með krabbamein í lífhimnu og lifur fyrir ári síðan. Kvíði, áfallastreita og þunglyndi fylgdu veikindunum og hún vill hjálpa öðrum með stuðningi í Stuðningsnetinu.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?