Högni: Margt sem læknirinn getur ekki sagt manni

  • Högni Sigurjónsson

Högni Sigurjónsson er 63 ára. Fyrir tíu árum greindist hann með Non-Hodgkins eitlakrabbamein og aftur sjö árum seinna.

„Þegar ég greindist með krabbamein þá hægðist hreinlega á öllu, hægðist allt lífið og allt fór miklu hægar fram. Í stofnfrumumeðferðinni varð ég rosalega veikur og eftir krabbamein forgangsraðaði ég bókstaflega öllu í lífi mínu og fékk allt aðra sýn á lífið, í dag eru sumir hlutir sem áður virtust mega bíða ,,betri tíma“ meira virði og framar í forgangsröðinni, gildismatið er annað.“

„Það skiptir svo miklu máli að heyra í og hitta fólk sem er á sama róli“

„Að mínu mati ætti fólk sem greinist eða er aðstandandi að setja sig í samband við Stuðningsnetið og heyra hvernig aðrir eru að upplifa veikindin. Það er svo margt sem læknirinn getur ekki sagt okkur en fólk sem er komið á þennan stað veit orðið ýmislegt. Það skiptir bara máli að tala við fólk sem er á sama róli og ekki síst að sjá að fólk hefur lifað af að hafa greinst með krabbamein og að krabbamein er ekki alltaf dauðadómur.

Það skiptir miklu máli að heyra í og hitta fólk sem er á sama róli. Við getum ekki sturtað þessu öllu yfir fjölskyldu, vini eða vinnufélaga, þau hafa ekki endalausa þolinmæði fyrir því. Að mínu mati á fólk bara að hafa samband við Stuðningsnetið, það getur svo metið það eftir á hvaða gagn það hefur af því.“

Högni er stuðningsfulltrúi í Stuðningsnetinu



Fleiri sögur

Kristín Þórsdóttir

4. feb. 2020 : Kristín: Það krefst mikils styrks að leita sér stuðnings

Kristín Þórsdóttir var 33ja ára þegar hún missti manninn sinn úr krabbameini en þau eiga þrjú börn saman. Veikindin tóku 11 ár og tóku mikið á. Nú, tveimur árum seinna, þykir Kristínu dýrmætt að hægt sé að leita stuðnings hjá einhverjum sem skilur út frá eigin reynslu.

Lesa meira
Anna Lára Magnúsdóttir

4. feb. 2020 : Anna Lára: Maður er ekki einn í heiminum

Anna Lára Magnúsdóttir er 47 ára og greindist fyrir sjö árum með brjóstakrabbamein. Henni fannst jafningjastuðningurinn veita sér von um að hún fengi gamla lífið sitt til baka. 

Lesa meira
Anna Maria Milosz

4. feb. 2020 : Anna María: Svo gott að pústa við einhvern sem skilur

Anna María greindist 34. ára með Non-Hodgkins eitilfrumukrabbamein en gaf sér ekki tíma til að hitta stuðningsfulltrúa. Hún sér eftir því í dag og telur mikilvægt að þiggja jafningjastuðning.

Lesa meira
Haukur Gunnarsson

4. feb. 2020 : Haukur: Samtalið er magnað fyrirbæri

Haukur Gunnarsson er sjötugur og greindist með krabbamein í blöðruhálskirtli fyrir þremur árum. Hann og kona hans hafa sótt stuðning í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins sem hefur auðveldað þeim að tala saman um veikindin og áskoranirnar sem þeim fylgja. 

Lesa meira
Ragnheiður Guðmundsdóttir

4. feb. 2020 : Ragnheiður: Greiningin breytti lífi mínu

Ragnheiður Guðmundsdóttir er 37 ára og greindist með krabbamein í lífhimnu og lifur fyrir ári síðan. Kvíði, áfallastreita og þunglyndi fylgdu veikindunum og hún vill hjálpa öðrum með stuðningi í Stuðningsnetinu.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?