Gísli: Sorgarferlið hefst við greiningu

  • Gísli Álfgeirsson

Gísli Álfgeirsson er 39 ára en á síðasta ári lést eiginkona hans eftir sex ára baráttu við brjóstakrabbamein. Saman eiga þau þrjú börn og Gísla finnst mikilvægt að styðja við barnafjölskyldur.

„Það þroskar mann mikið að vera stuðningsfulltrúi og kennir manni almenna samkennd með náunganum“

„Konan mín greindist árið 2013 með brjóstakrabbamein og fór þá lyfjameðferð, brjóstnám og geisla. Hún greindist svo aftur árið 2015 og þá var krabbameinið búið að dreifa sér um líkamann.“

https://youtu.be/jdMawAtjRMA

„Í þessu stóra sorgarferli sem hefst þegar maður fær að vita að maki manns sé með krabbamein þá skiptir rosalega miklu máli að fá hjálp og stuðning. Maður kemst ekki í gegnum þessa reynslu án þess að tala við einhvern eða það efast ég stórlega. Ég er búinn að prófa að vinna mig frá þessu og drekka mig frá þessu. Hvorugt gengur. Það var ekki fyrr en að ég bað um aðstoð og stuðning að þetta fór að ganga.

Ég ákvað að gerast stuðningsfulltrúi í Stuðningsnetinu til að hjálpa öðrum aðstandendum. Aðstandendum sem eiga jafnvel maka með brjóstakrabbamein og börn. Maður þarf að styrkja foreldrið til að geta styrkt barnið sitt. Þannig að það er ekki alltaf að barnið þurfi stuðning í Stuðningsnetinu heldur að það þurfi stuðning foreldri síns. Þá er um að gera að foreldrið geti fengið stuðning hjá Stuðningsnetinu fyrir sig. Ég vona að það hjálpi þeim en það hjálpar mér ekki síður. Að geta talað um þetta og miðlað af eigin reynslu. En í flestum tilfellum er ég bara að hlusta. Stuðningsnetið er svo mikilvægt því þar er fólk eins og ég og þú sem deila sömu reynslu. Svona jafningjastuðningur er einstakur.“

Gísli er stuðningsfulltrúi í Stuðningsnetinu



Fleiri sögur

Kristín Þórsdóttir

4. feb. 2020 : Kristín: Það krefst mikils styrks að leita sér stuðnings

Kristín Þórsdóttir var 33ja ára þegar hún missti manninn sinn úr krabbameini en þau eiga þrjú börn saman. Veikindin tóku 11 ár og tóku mikið á. Nú, tveimur árum seinna, þykir Kristínu dýrmætt að hægt sé að leita stuðnings hjá einhverjum sem skilur út frá eigin reynslu.

Lesa meira
Anna Lára Magnúsdóttir

4. feb. 2020 : Anna Lára: Maður er ekki einn í heiminum

Anna Lára Magnúsdóttir er 47 ára og greindist fyrir sjö árum með brjóstakrabbamein. Henni fannst jafningjastuðningurinn veita sér von um að hún fengi gamla lífið sitt til baka. 

Lesa meira
Anna Maria Milosz

4. feb. 2020 : Anna María: Svo gott að pústa við einhvern sem skilur

Anna María greindist 34. ára með Non-Hodgkins eitilfrumukrabbamein en gaf sér ekki tíma til að hitta stuðningsfulltrúa. Hún sér eftir því í dag og telur mikilvægt að þiggja jafningjastuðning.

Lesa meira
Haukur Gunnarsson

4. feb. 2020 : Haukur: Samtalið er magnað fyrirbæri

Haukur Gunnarsson er sjötugur og greindist með krabbamein í blöðruhálskirtli fyrir þremur árum. Hann og kona hans hafa sótt stuðning í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins sem hefur auðveldað þeim að tala saman um veikindin og áskoranirnar sem þeim fylgja. 

Lesa meira
Ragnheiður Guðmundsdóttir

4. feb. 2020 : Ragnheiður: Greiningin breytti lífi mínu

Ragnheiður Guðmundsdóttir er 37 ára og greindist með krabbamein í lífhimnu og lifur fyrir ári síðan. Kvíði, áfallastreita og þunglyndi fylgdu veikindunum og hún vill hjálpa öðrum með stuðningi í Stuðningsnetinu.

Lesa meira

Var efnið hjálplegt?