Að tala við börnin um krabbamein

Eitt af erfiðu viðfangsefnunum sem blasir við foreldrum þegar fjölskyldumeðlimur greinist með krabbamein er að ákveða hvað eigi að segja börnunum. Óttinn um að valda þeim áhyggjum og uppnámi verður oft til þess að foreldrar veigra sér við að segja þeim fréttirnar. Það er mikilvægt að hafa í huga að jafnvel lítil börn eru fljót að skynja þegar eitthvað er að. Ef þau fá ekki að heyra sannleikann geta þau því ímyndað sér hlutina verri en þeir í raun eru eða álitið að þau hafi gert eitthvað rangt. Að eiga þetta samtal við börnin er ekki auðvelt en þó nauðsynlegt. Það er mikilvægt að hafa í huga að þú þekkir þitt barn best og hvernig þú vilt nálgast það en hér koma nokkur atriði sem gætu verið gagnleg.

· Talaðu skýrt og af hreinskilni og notaðu orð sem barnið á auðvelt með að skilja. Þörf fyrir nánari útskýringar gæti verið meiri því eldra sem barnið er. Notaðu orðið krabbamein. Kannski viltu ekki segja barninu allt að svo stöddu – treystu þinni dómgreind.

· Ræddu það sem er framundan og hvernig á að meðhöndla krabbameinið.

· Reyndu að svara spurningum eins hreinskilnislega og þú getur. Það er allt í lagi að segja að þú vitir ekki svarið.

· Það er gott að barnið viti að krabbameinið er engum að kenna og að læknirinn er að gera sitt besta.

· Mikilvægt er að fullvissa sig um að barnið viti að krabbamein er ekki smitandi.

· Láttu barnið vita að það sé eðlilegt að finna fyrir alls konar tilfinningum og að þú finnir fyrir þeim líka. Láttu barnið vita að það þurfi ekki að hlífa foreldrum sínum og að þú viljir vita þegar því líður illa.

· Það er mikilvægt að barnið viti að það má áfram leika sér og hafa gaman.

- Mundu að þú ert að gera þitt besta - 


Hér finnur þú meðal annars slóð á bæklinginn, Mamma, pabbi hvað er að? en þar er að finna upplýsingar og ráð um hvernig hægt er að bera sig að við að ræða við börnin um krabbamein.

Einnig er hægt að hafa samband við ráðgjafa hjá Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins í síma 800 4040 eða radgjof@krabb.is


Var efnið hjálplegt?