Selfoss

Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins í samvinnu við aðildarfélag Árnessýslu og Heilbrigðisstofnun Suðurlands.

Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er upplýsinga og stuðningsþjónusta fyrir fólk sem greinst hefur með krabbamein og fyrir aðstandendur. Þjónustan er einnig fyrir þá sem hafa misst nákominn úr krabbameini.

Markmið Ráðgjafarþjónustunnar er að aðstoða fólk við að ná jafnvægi í lífinu við þær breyttu aðstæður sem greining krabbameins veldur.

Starfsmaður frá Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins er á Selfossi annan hvern föstudag og býður upp á einstaklingsviðtöl hjá Krabbameinsfélagi Árnessýslu, Eyrarvegi 31. Viðtöl eru fólki að kostnaðarlausu.

Boðið er upp á símaráðgjöf alla virka daga milli kl.9-16 í síma 800 4040, tímapantanir eru á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040.

  • Ráðgjafi Krabbameinsfélagsins er Lóa Björk Ólafsdóttir,  hjúkrunarfræðingur.

Á heimasíðu Krabbameinsfélagsins er að finna fjölbreytt rafrænt efni:

Fyrirlestrar, ráðstefnur og viðburðir

Fræðsluefni á heimasíðu
Á heimasíðu krabbameinsfélagsins er hægt að finna ýmislegt fræðsluefni tengt krabbameini. Ef farið er undir flipann „ Ráðgjöf og stuðningur “ er hægt að finna fræðsluefni um ýmislegt tengt því að greinast með krabbamein eða vera aðstandi. Þar er einnig hægt að sjá viðburði og námskeið sem eru á döfinni hjá Ráðgjafarþjónustunni.