Viltu hætta að reykja? Reykbindindisnámskeið

  • 1.2.2016, 17:00 - 18:00, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Krabbameinsfélag Reykjavíkur býður upp á reykleysisnámskeið í húsnæði Ráðgjafarþjónustunnar að Skógarhlíð 8, 1. hæð. Námskeiðið hefst mánudaginn 1. febrúar 2016 kl. 17:00-18:00.

Leiðbeinandi er Ingibjörg K. Stefánsdóttir hjúkrunarfræðingur.

  • 1. fundur: Mánudaginn 1. febrúar kl. 17:00-18:00. Undirbúningsfundur.
  • 2. fundur: Mánudaginn 8. febrúar kl. 17:00-18:00. Undirbúningsfundur.
  • 3. fundur: Mánudaginn 15. febrúar kl.17.00-18.00. Allir hættir að reykja.
  • 4. fundur: Fimmtudaginn 18. febrúar kl. 17:00-18:00.
  • 5. fundur: Mánudaginn 22. febrúar kl. 17:00-18:00.
  • 6. fundur: Mánudaginn 29. febrúar kl. 17:00-18:00.
  • 7. fundur: Mánudaginn 14. mars kl. 17:00-18:00.
  • 8. fundur: Mánudaginn 23. maí 2016 kl. 17:00-18:00. Endurfundir.

Fyrir marga er mikið mál að hætta að reykja og marklaust að gera slíkt  með hálfum huga. Því betur sem menn sækja fundina þeim mun meiri líkur eru á að þeir hætti að reykja. Fylgja á leiðbeiningum um undirbúning. Á meðan námskeiðstendur og að því loknu geta þátttakendur fengið einkaviðtöl við leiðbeinanda.

Skráning á reykleysi@krabb.is eða í síma 540 1900 . Þátttökugjald er 15.000 kr.  

Nánari upplýsingar og leiðbeiningar eru á vefsíðunni krabb.is/reykleysi

Bæklingar um reykingar


Var efnið hjálplegt?