VERUM TIL - mál­þing um brjósta­krabba­mein

  • 20.10.2021, 17:00 - 18:15, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

 Bleikt málþing um brjóstakrabbamein verður miðvikudaginn 20. október 2021 kl. 17:00-18:15 á vegum Brjóstaheilla – Samhjálpar kvenna,Krabbameinsfélags höfuðborgarsvæðisins og Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins.

Málþingið fer fram 20. október kl.17:00 í húsnæði Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8, 1. hæð.

Dagskrá

  • Setning: Brynja Björk Gunnarsdóttir formaður Brjóstaheilla – Samhjálpar kvenna
  • Horfur íslenskra kvenna með brjóstakrabbamein: Helgi Birgisson yfirlæknir á Rannsókna- og skráningarsetri Krabbameinsfélagsins
  • Gæðaskráning – hagur krabbameinsgreindra: Hrefna Stefánsdóttir sérfræðingur á Rannsókna- og skráningarsetri Krabbameinsfélagsins
  • Brjóstaheilsa á tímamótum – Brjóstakrabbamein, mikilvægi skimunar og reynsla erlendis: Ólöf Kristjana Bjarnadóttir krabbameinslæknir á Landspítalanum
  • Brjóstaheilsa á tímamótum – Sjúkdómar í brjóstum / Aðgengi að sérfræðingsþjónustu og framtíðarsýn: Svanheiður Lóa Rafnsdóttir brjóstaskurðlæknir á Landspítalanum
  • Reynslusaga: Lára Guðrún Jóhönnudóttir
  • Umræður

Fundarstjóri: Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri Vestmannaeyja

Málþinginu verður streymt í streymisveitu Krabbameinsfélagsins á slóðinni:  livestream.com/krabb/verumtil

Þeir sem vilja vera á staðnum eru beðnir um að skrá sig hér.


Var efnið hjálplegt?