Veiðiferð: Kastað til bata

  • 7.6.2019 - 9.6.2019, Laxá í Laxárdal

Kastað til bata“ er verkefni á vegum Brjóstaheilla - Samhjálpar kvenna, Krabbameinsfélagsins
og styrktaraðila þar sem konum er boðið í veiðiferð. Þetta skemmtilega verkefni er hugsað sem
endurhæfing fyrir konur sem lokið hafa meðferð við brjóstakrabbameini.

Markmið veiðiferðarinnar er að veita konum tækifæri til að styrkja sig á líkama og sál með því að æfa flugukast í fallegu umhverfi, njóta samvista við veiðifélaga með svipaða reynslu og veiða ef heppnin er með þeim. Vanir fluguveiðimenn kenna þátttakendum að kasta flugu og er ávallt tekið mið af líkamlegri getu þeirra.

Að þessu sinni verður farið í Laxá í Laxárdal á Norðausturlandi og geta 12-14 konur tekið
þátt. Ferðin hefst á hádegi föstudaginn 7. júní og henni lýkur um kaffileytið sunnudaginn 9.
júní. Þessi ævintýraferð er þátttakendum að kostnaðarlausu.

Þetta er í tíunda sinn sem „Kastað til bata“ verkefnið er. Þátttakendur hafa verið afar ánægðir.

„Frábær ferð í alla staði, gott að hitta konur sem hafa gengið í gegnum sambærilega hluti og fá upplýsingar um þeirra ferli.“

„Þvílíkt flott hópefli. Bý að þessu um ókomna tíð. Yndislegur hópur.“

Þær konur sem hafa áhuga á taka þátt eru beðnar að senda umsókn á netfangið kaon@krabb.is fyrir 1.maí 2019 þar sem fram koma eftirfarandi upplýsingar: 

  • Nafn
  • Heimilisfang
  • Sími
  • Kennitala,
  • Hvenær meðferð lauk (mánuður og ár) 
  • Stutt greinargerð um hvers vegna umsækjandi vill taka þátt í verkefninu og hvernig hann metur líkamlegt ástand sitt til þess að taka þátt í endurhæfingarverkefni á borð við þetta.

Nánari upplýsingar á netfangið kaon@krabb.is (Krabbam.fél Ak og nágr.) s: 461-1470 eða
radgjof@krabb.is (Ráðgjafarþjónusta krabbameinsfélagins) s: 800-4040.


Var efnið hjálplegt?