• Kristín Bergsdóttir, hjúkrunar- og lýðheilsufræðingur
    Kristín Bergsdóttir, hjúkrunar- og lýðheilsufræðingur

Suðurnes: Stuðningur og ráðgjöf

  • 19.3.2021, 10:00 - 15:00, Suðurnes

Krabbameinsfélagið í samvinnu við aðildarfélag Suðurnesja, Reykjanesbæjar og HSS býður upp á ráðgjöf og stuðning fyrir þá sem hafa greinst með krabbamein og aðstandendur. Þjónustan býðst einnig þeim sem hafa misst ástvin úr krabbameini.

Starfsmaður frá Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins Kristín Bergsdóttir, hjúkrunarfræðingur, er í Reykjanesbæ annan hvern föstudag og býður upp á einstaklingsviðtöl í Ráðhúsi Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12., kjallari. Viðtölin eru fólki að kostnaðarlausu.

Hafir þú þörf fyrir ráðgjöf og stuðning varðandi það sem þú ert að upplifa, til dæmis sálræna líðan,félagsleg réttindi eða líkamleg einkenni hvetjum við þig til að panta tíma.

Hægt er að panta tíma á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040.


Var efnið hjálplegt?