Suðurnes: Stuðningur og ráðgjöf

  • 4.4.2022, 10:00 - 15:00, Suðurnes

 

Krabbameinsfélagið býður upp á ráðgjöf og stuðning fyrir þá sem hafa greinst með krabbamein og aðstandendur. Þjónustan býðst einnig þeim sem hafa misst ástvin úr krabbameini.

Starfsmaður frá Krabbameinsfélaginu, Sigrún Lillie Magnúsdóttir, hjúkrunarfræðingur, er í Reykjanesbæ annan hvern mánudag og býður upp á einstaklingsviðtöl í húsnæði Krabbameinsfélags Suðurnesja að Smiðjuvöllum 8. Viðtölin eru fólki að kostnaðarlausu.

Hafir þú þörf fyrir ráðgjöf og stuðning varðandi það sem þú ert að upplifa, til dæmis sálræna líðan,félagsleg réttindi eða líkamleg einkenni hvetjum við þig til að panta tíma.


Var efnið hjálplegt?