Fræðslufundur stuðningshóps kvenna með krabbamein í kvenlíffærum
Rabbfundur Stuðningshóps kvenna sem fengið hafa krabbamein í kvenlíffæri verður í húsi Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8 í Reykjavík, miðvikudaginn 22. febrúar kl. 17:00.
Reynir Tómas Geirsson sérfræðingur í kvensjúkdómum og fyrrverandi prófessor verður á staðnum ef einhver óskar eftir tala við hann.
Konur sem fengið hafa krabbamein í kvenlíffæri eru hvattar til að mæta.