Hádegisfyrirlestur: Að dreyma sig út úr erfiðleikum
Miðvikudaginn 10. febrúar 2016 kl. 12:00-12:50 verður hádegisfyrirlestur í húsnæði Ráðgjafarþjónustunnar.
Haraldur Erlendsson sérfræðingur í geðlækningum og yfirlæknir og forstjóri Heilsustofnunar NLFÍ ræðir um tengsl drauma og andlegrar heilsu. Er hægt að dreyma sig út úr erfiðleikum?
Boðið verður upp á ilmandi brauð frá Brauðhúsinu í Grímsbæ, te frá Tefélaginu og viðbit frá Mjólkursamsölunni.