Stuðnings­fulltrúa­námskeið

Viltu læra að miðla af reynslu þinni?

  • 3.10.2017, 17:00 - 21:00, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Stuðningsnet Krafts og Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins standa fyrir námskeiði fyrir stuðningsfulltrúa þriðjudagana 26. september og 3. október, frá kl. 17:00 til 21:00. Námskeiðið verður haldið í sal Ráðgjafarþjónustunnar á fyrstu hæð í húsnæði Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8.

Námskeiðið er bæði ætlað þeim sem hafa greinst með krabbamein og hafa lokið við krabbameinsmeðferð sem og aðstandendum, sem vilja styðja við einstaklinga sem eru í svipuðum sporum. 

Þar sem við höfum fundið fyrir aukinni þörf í að styðja við aðstandendur viljum við sérstaklega hvetja áhugasama aðstandendur til þess að skrá sig.

Á námskeiðinu er m.a. veitt þjálfun í samtalstækni, að deila reynslu sinni á viðeigandi hátt og að setja mörk. Ásamt því að farið verður yfir ýmis málefni sem oft fylgja krabbameinsveikindum eins og erfiðar tilfinningar, hvar má nálgast upplýsingar, aðstoð fagaðila, samskipti í fjölskyldum, að tala við börn um krabbamein og fleira.

Boðið verður upp á kvöldverð og komið verður til móts við þá sem ekki búa á höfuðborgarsvæðinu og þurfa að ferðast lengri vegalengdir til þess að komast á námskeiðið.

Umsjónarmaður námskeiðsins er Þorri Snæbjörnsson, sálfræðingur og umsjónarmaður stuðningsnets Krafts og Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins.

Skráning fer fram í gegnum netfangið salfraedingur@kraftur.org eða með því að fylla út þetta skráningarform.

Nánari upplýsingar um námskeiðið eru veittar í síma 866 9618.


Var efnið hjálplegt?