Stuðnings­fulltrúanámskeið

  • 18.10.2016, 17:00 - 21:00, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Stuðningsfulltrúanámskeið fyrir verðandi stuðningsfulltrúa í stuðningsneti Krafts verður haldið þriðjudagana 18. og 25. október, frá klukkan 17:00 til 21:00.

Námskeiðið verður haldið í sal Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins á fyrstu hæð í húsnæði Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8.

Á námskeiðinu er m.a. veitt þjálfun í samtalstækni, að deila reynslu sinni á viðeigandi hátt og að setja mörk. Ásamt því að farið verður yfir ýmis málefni sem oft fylgja krabbameinsveikindum eins og erfiðar tilfinningar, hvar má nálgast upplýsingar, aðstoð fagaðila, samskipti í fjölskyldum, að tala við börn um krabbamein og fleira.

Boðið verður upp á kvöldverð og komið verður til móts við þá sem ekki búa á höfuðborgarsvæðinu og þurfa að ferðast lengri vegalengdir til þess að komast á námskeiðið.

Umsjónarmaður námskeiðsins er Þorri Snæbjörnsson, sálfræðingur og umsjónarmaður stuðningsnets Krafts.Skráning á netfanginu salfraedingur@kraftur.org.


Var efnið hjálplegt?