Stuðnings­netið: Nám­skeið fyrir stuðn­ings­full­trúa 1/2

  • 4.3.2019, 17:00 - 21:00, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Stuðningsfulltrúanámskeið fyrir verðandi stuðningsfulltrúa í stuðningsneti Krafts og Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins verður haldið í tveimur pörtum mánudagana 4.mars og 11.mars, frá klukkan 17:00 til 21:00. Námskeiðið verður haldið í sal Ráðgjafarþjónustunnar á fyrstu hæð í húsnæði Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8. 

Boðið verður upp á kvöldmat bæði kvöldin í boði Krafts og Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins.

Námskeiðið er bæði ætlað þeim sem hafa greinst með krabbamein og hafa lokið við krabbameinsmeðferð sem og aðstandendum, sem vilja styðja við einstaklinga sem eru í svipuðum sporum.

Til að taka þátt á námskeiðinu þarf að skrá sig á netfanginu salfraedingur@kraftur.org eða með því að fylla út þetta skráningarform.

Frekari upplýsingar má sjá hér.

„Það sem hjálpaði mest var að hitta aðra sem höfðu lent í svipuðum sporum, Kraftur bjargaði geðheilsunni minni….“

26 ára félagsmaður sem greindist með ristilkrabbamein


Var efnið hjálplegt?