Stuðningshópur fyrir enskumælandi konur af erlendum uppruna
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins starfrækir stuðningshóp fyrir enskumælandi konur af erlendum uppruna með brjóstakrabbamein
Hópurinn hittist þriðja hvern fimmtudag í mánuði kl. 16:30-17:30 í húsnæði Ráðgjafar-þjónustunnar að Skógarhlíð 8. Hópurinn er ætlaður þeim konum sem hafa eða hafa haft krabbamein og aðstandendur þeirra. Boðið er upp á jafningjafræðslu og jafningjastuðning.
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið er mánudaga til miðvikudaga kl. 9-16, fimmtudaga kl. 9-18 og föstudaga kl. 9-14. Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 10-15. Einnig er hægt að hafa samband með því að senda tölvupóst á netfangið radgjof@krabb.is.