Stuðnings­fulltrúa­námskeið: Ertu góð­hjart­aður reynslu­bolti sem vilt nýta reynslu þína öðrum til góða? (2 af 2)

  • 8.11.2023, 17:00 - 21:00, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Stuðningsfulltrúanámskeið fyrir verðandi stuðningsfulltrúa í Stuðningsnetinu haldið í tveimur pörtum miðvikudagana 1. nóvember og 8. nóvember, frá klukkan 17:00 til 21:00. Námskeiðið verður haldið í sal Krabbameinsfélagsins á 1. hæð, Skógarhlíð 8.

Námskeiðið er bæði ætlað þeim sem greinst hafa með krabbamein og hafa lokið við krabbameinsmeðferð sem og aðstandendum, sem vilja styðja við einstaklinga sem lenda í svipuðum sporum.

Til að taka þátt á námskeiðinu þarf að skrá sig á netfanginu thorri@krabb.is eða með því að fylla út þetta skráningarform. Boðið verður upp á kvöldmat bæði kvöldin í boði Krabbameinsfélagsins og Krafts sem starfrækja Stuðningsnetið.

„Það sem hjálpaði mest var að hitta aðra sem höfðu lent í svipuðum sporum, Kraftur bjargaði geðheilsunni minni….“

26 ára félagsmaður sem greindist með ristilkrabbamein


Var efnið hjálplegt?