Stuðnings fulltrúanámskeið: Ertu góðhjartaður reynslubolti sem vilt nýta reynslu þína öðrum til góða?
Stuðningsfulltrúanámskeið fyrir verðandi stuðningsfulltrúa í Stuðningsnetinu verður haldið í tveimur pörtum mánudagana 23. maí og 30. maí, frá klukkan 17:00 til 21:00. Námskeiðið verður haldið í sal Ráðgjafarþjónustunnar á 1. hæð í húsnæði Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8.
Námskeiðið er bæði ætlað þeim sem greinst hafa með krabbamein og hafa lokið við krabbameinsmeðferð sem og aðstandendum, sem vilja styðja við einstaklinga sem lenda í svipuðum sporum.
- Skráning á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040.
Boðið verður upp á kvöldmat bæði kvöldin í boði Krabbameinsfélagsins og Krafts sem starfrækja Stuðningsnetið.