Stuðnings­fulltrúa­nám­skeið á Akur­eyri

  • 17.11.2018, 10:00 - 17:00, Krabbameinsfélag Akureyri og nágrennis

Stuðningsnetið fer norður á Akureyri!

Vilt þú nýta reynslu þína til góða fyrir aðra?

Stuðningsfulltrúanámskeið fyrir verðandi stuðningsfulltrúa í Stuðningsneti Krafts og Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins verður haldið laugardaginn 17.nóv. frá klukkan 10:00 – 17:00. Námskeiðið verður haldið í húsnæði Krabbameinsfélagsins á Akureyri, Glerárgötu 34.

Á námskeiðinu er m.a. veitt þjálfun í samtalstækni, að deila reynslu sinni á viðeigandi hátt og að setja mörk. Ásamt því að farið verður yfir ýmis málefni sem oft fylgja krabbameinsveikindum eins og erfiðar tilfinningar, hvar má nálgast upplýsingar, aðstoð fagaðila, samskipti í fjölskyldum, að tala við börn um krabbamein og fleira.

Boðið verður upp á hádegismat með á námskeiðinu stendur.

Umsjónarmaður námskeiðsins er Þorri Snæbjörnsson, sálfræðingur og umsjónarmaður stuðningsnets Krafts og Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélags Íslands.

Til að taka þátt á námskeiðinu þarf að skrá sig á netfanginu salfraedingur@kraftur.org eða með því að fylla út þetta skráningarform.


Var efnið hjálplegt?