Stuðnings­fulltrúa­nám­skeið 1/2

  • 19.9.2019, 17:00 - 21:00, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Námskeið fyrir verðandi stuðningsfulltrúa í stuðningsneti Krafts og Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins verður haldið fimmtudagana 19. og 26. september, frá klukkan 17:00 til 21:00. Námskeiðið verður haldið í sal Ráðgjafarþjónustunnar á fyrstu hæð í húsnæði Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8.

Á námskeiðinu er m.a. veitt þjálfun í samtalstækni, að deila reynslu sinni á viðeigandi hátt og að setja mörk. Ásamt því að farið verður yfir ýmis málefni sem oft fylgja krabbameinsveikindum eins og erfiðar tilfinningar, hvar má nálgast upplýsingar, aðstoð fagaðila, samskipti í fjölskyldum, að tala við börn um krabbamein og fleira. Mælst er til þess að liðin séu a.m.k. tvö ár frá því að meðferð lauk en hvert tilfelli er metið fyrir sig.

Boðið verður upp á kvöldverð og mun Kraftur taka þátt í bensínkostnaði fyrir þá sem ekki búa á höfuðborgarsvæðinu og þurfa að ferðast lengri vegalengdir til þess að komast á námskeiðið.

Námskeiðið er bæði ætlað krabbameinsgreindum og aðstandendum en við vekjum athygli á að okkur vantar sérstaklega fleiri aðstandendur og karlmenn í stuðningsnetið.

Umsjónarmaður námskeiðsins er Þorri Snæbjörnsson, sálfræðingur og umsjónarmaður stuðningsnets Krafts og Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélags Íslands.

Skráning á netfanginu salfraedingur@kraftur.org.

Nánari upplýsingar í síma: 866-9618


Var efnið hjálplegt?