Opinn tími: Slökun
Opnir tímar í djúpslökun fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur eru í boði í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins Skógarhlíð 8, Reykjavík, alla miðvikudaga kl. 11.30 -12:00.
Leiðbeinendur eru Auður E. Jóhannsdóttir hjúkrunarfræðingur og Gunnjóna Una félagsráðgjafi ásamt gestaleiðbeinendum.
Allir eru velkomnir og ekki þörf á að skrá sig fyrirfram. Þátttaka ókeypis.
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík og er opin virka daga frá kl. 9-16. Símaráðgjöf er á opnunartíma í síma 800 4040. Einnig er hægt er að senda fyrirspurnir á radgjof@krabb.is og er þeim svarað eins fljótt og hægt er.