• Lóa Björk Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur

Selfoss: Stuðningur og ráðgjöf

  • 22.5.2020

Krabbameinsfélagið býður upp á ráðgjöf og stuðning fyrir þá sem hafa greinst með krabbamein og aðstandendur.

Lóa Björk Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur hjá Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins í Reykjavík býður upp á einstaklingsviðtöl annan hvern föstudag á Heilbrigðisstofnun Suðurlands.

Hægt er að panta tíma á netfangið radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040 .

Hafir þú þörf fyrir ráðgjöf og stuðning varðandi það sem þú ert að upplifa, til dæmis líkamleg einkenni, sálræna líðan eða félagsleg réttindi hvetjum við þig til að panta tíma. Ég er tilbúin að hlusta og liðsinna þér. Viðtölin eru fólki að kostnaðarlausu.

Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið virka daga kl. 9-16. Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 13-15.


Var efnið hjálplegt?