Samtal um réttindi fólks með krabbamein

  • 7.3.2018, 13:00 - 13:30, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8
  • 14.3.2018, 13:00 - 13:30, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8
  • 21.3.2018, 13:00 - 13:30, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8
  • 28.3.2018, 13:00 - 13:30, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8
  • 4.4.2018, 13:00 - 13:30, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8
  • 11.4.2018, 13:00 - 13:30, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8
  • 18.4.2018, 13:00 - 13:30, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8
  • 25.4.2018, 13:00 - 13:30, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8
  • 2.5.2018, 13:00 - 13:30, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8
  • 9.5.2018, 13:00 - 13:30, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8
  • 16.5.2018, 13:00 - 13:30, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8
  • 23.5.2018, 13:00 - 13:30, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8
  • 30.5.2018, 13:00 - 13:30, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins býður upp á kynningu undir yfirskriftinni „Samtal um réttindi fólks með krabbamein“. Rætt verður um réttindi og hagnýtar upplýsingar varðandi fjármál, félagsleg réttindi og endurhæfingu fyrir fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra á miðvikudögum kl. 13:00 til 13:30.

Veittar verða upplýsingar um helstu úrræði sem í boði eru, svo sem  tekjur í veikindum, styrki til að mæta útgjöldum vegna veikinda, endurhæfingarúrræði, sálfélagslegan stuðning, stuðningshópa Krabbameinsfélagsins og fleira sem kemur sér vel að vita um í veikindum.

Hægt er að nálgast samantektina "Réttindi krabbameinsveikra - upplýsingar um fjármál, félagsleg réttindi og endurhæfingu" með því að smella hér .

Nánari upplýsingar fást hjá Gunnjónu Unu Guðmundsdóttur félagsráðgjafa hjá Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins á netfangið radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040.

Panta mál viðtal í sima 800 4040 eða á netfanginu radgjof@radgjof.is. Viðtöl eru fólki að kostnaðarlausu.


Var efnið hjálplegt?