Réttindi fólks með krabbamein
Félagsráðgjafi fræðir um réttindi fyrir fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þess á miðvikudögum frá kl. 13:00-13:30.
Allir eru velkomnir og ekki er þörf á að skrá sig fyrirfram.
Einnig er veitt aðstoð við að fylla út umsóknir og sækja um úrræði sem fólk gæti átt rétt á. Ef þessi tími hentar ekki má panta viðtal í síma 800 4040 eða með tölvupósti á netfangið radgjof@krabb.is.
Viðtölin eru fólki að kostnaðarlausu.
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið mánudaga til miðvikudaga kl. 9-16, fimmtudaga kl. 9-18 og föstudaga kl. 9-14.
Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 10-15.