Ráðstefna Lífs og Krabbameinsfélagsins
Globeathon er alþjóðlegt átak til að vekja athygli á krabbameini í kvenlíffærum. Af því tilefni efna Líf styrktarfélag og Krabbameinsfélagið til ráðstefnu.
Ráðstefnan verður haldin í húsnæði Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8, fimmtudaginn 7. september kl. 17:30 -19:00.
Skráning á ráðstefnuna fer fram HÉR.
Dagskrá ráðstefnunnar:
Kl. 17:30
Setning ráðstefnunnar og kynning á Globeathon hugmyndinni. Sigrún Arnardóttir læknir og formaður Lífs styrktarfélags.
Kl. 17:35
Keiluskurður á leghálsi. Anna Þ. Salvarsdóttir, kvensjúkdómalæknir.
Kl. 17:55
Meðferð við eggjastokkakrabbameinum. Katrín Kristjánsdóttir, kvensjúkdómalæknir.
Kl. 18:15
Erfðaráðgjöf kvenna með BRCA gen. Vigdís Stefánsdóttir, erfðafræðingur og erfðaráðgjafi.
Kl. 18:30
Reynsla mín sem BRCA arfberi. Hulda Bjarnadóttir, fjölmiðlakona.
Kl. 18:45
Pallborðsumræður. Spurningar og svör.
Kl. 19:00
Ráðstefnulok.
Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.
Nánari upplýsingar veita Sigrún Arnardóttir í gegnum netfangið sigrunarnar@simnet.is og Sóley Jónsdóttir í gegnum netfangið soley@krabb.is