Ráðstefna: International Myeloma Foundation í samvinnu við Perluvini - félag um mergæxli.
Fyrsta ráðstefna International Myeloma Foundation í samvinnu við Perluvini - Félag um mergæxli (myeloma) á Íslandi (sjá vefsíðu hér), Háskóla Íslands og Landspítalann -24. október 2016 kl. 9:15 á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2.
Til ráðstefnunnar er boðið þeim sem greinst hafa með mergæxli og aðstandendum þeirra, heilbrigðisstarfsfólki sem og öðrum þeim sem áhuga hafa á efni ráðstefnunnar.
Ráðstefnustjóri er Guðrún Agnarsdóttir læknir, fyrrverandi forstjóri Krabbameinsfélags Íslands.
Skráning á ráðstefnuna verður að berast í síðasta lagi mánudaginn 17. október. Skráning fer fram á vefsíðu Perluvina - smelltu hér til að skrá þig.
Dagskrá ráðstefnunnar
09:15 Skráning og kaffi
09:45 Opnun ráðstefnunnar. Nadia Elkebir (IMF) og Kristín Einarsdóttir (Perluvinir)
10:00 Hvað er myeloma? Sigurður Yngvi Kristinsson, læknir og prófessor
10:45 Heilsurækt og myeloma. Ása Dagný Gunnarsdóttir sjúkraþjálfari
11:30 Að lifa góðu lífi með myeloma, viðhorf sjúklings. Kjartan Gunnarsson, lögfræðingur
12:00 Hádegisverður
13:00 Ræða. Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra
13:15 Rannsóknin "Blóðskimun til bjargar" (iStopMM). Sigurður Yngvi Kristinsson
14:15 Drugs of the future, new clinical trials. Dr. Rafat Abonour, læknir og prófessor frá Háskólanum í Indianapolis í Bandaríkjunum.
15:00 Kaffihlé
15:15 Future treatments. Dr. Rafat Abonour
16:00 Spurningar og umræður
16:30 Ráðstefnulok
Nánari upplýsingar um Perluvini- félag um mergæxli (myeloma) er að finna hér.