Rabbfundur Góðra hálsa

  • 1.3.2017, 17:00 - 18:00, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Góðir hálsar, stuðningshópur um krabbamein í blöðruhálskirtli, verða með mánaðarlegan rabbfund sinn í húsi Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8 í Reykjavík miðvikudaginn 1. mars kl. 17.00.

Gestur fundarins er Eiríkur Orri Guðmundsson sérfræðingur í þvagfæraskurðlækningum. Hann ætlar að ræða um krabbamein í blöðruhálskirtli.

Fundurinn er einkum ætlaður þeim sem greinst hafa með krabbamein í blöðruhálskirtli og aðstandendum þeirra.

Kaffi verður á könnunni.


Var efnið hjálplegt?