Spjallfundur: Brjóstakrabbamein
Þriðjudaginn 28. febrúar kl. 16:30-17:30 býður Brjóstaheill – Samhjálp kvenna og Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins upp á opinn spjallfund fyrir konur sem hafa greinst með brjóstakrabbamein Fulltrúi frá Landspítala verður á staðnum.
Þorri Snæbjörnsson, sálfræðingur mun ræða um andlega erfiðleika í kjölfar krabbameinsgreiningar. Hvað er til ráða?
Fundurinn er haldinn í húsnæði Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8, 1. hæð.
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík.
Opið virka daga kl. 9:00-16:00. Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 13:00-15:00.
Netfang: radgjof@krabb.is.