Rabbfundur hjá Góðum hálsum – miðstöð krabbameina í blöðruhálskirtli
Góðir hálsar, stuðningshópur um krabbamein í blöðruhálskirtli, verða með mánaðarlegan rabbfund sinn í húsi Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8 í Reykjavík, miðvikudaginn 6. mars kl. 17:00.
Gestur fundarins verður Rafn Hilmarsson sérfræðilæknir á þvagfæraskurðdeild Landspítalans. Rafn ætlar að kynna miðstöð krabbameina í blöðruhálskirtli á Landspítalanum og það sem er nýtt í greiningu og meðferð.
Fundurinn er einkum ætlaður þeim sem greinst hafa með krabbamein í blöðruhálskirtli og aðstandendum þeirra. Kaffi verður á könnunni.
Erindi Rafns verður streymt beint í Streymisveitu Krabbameinsfélagsins: