Rabbfundur hjá Góðum hálsum - kynning á Karlaklefanum
Góðir hálsar, stuðningshópur um krabbamein í blöðruhálskirtli, verða með mánaðarlegan rabbfund sinn í húsi Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8 í Reykjavík, miðvikudaginn 3. apríl kl. 17:00.
Gestur fundarins verður Guðmundur Pálsson vefstjóri Krabbameinsfélagsins. Guðmundur ætlar að kynna Karlaklefann en í honum er rætt um heilsu, forvarnir, veikindi og fræðst um reynslu annarra.
Fundurinn er einkum ætlaður þeim sem greinst hafa með krabbamein í blöðruhálskirtli og aðstandendum þeirra. Kaffi verður á könnunni.