Rabbfundur hjá Góðum hálsum: Hugsanir og líðan eftir greiningu krabbameins í blöðruhálskirtli - rannsóknir frá Svíþjóð
Góðir hálsar, stuðningshópur um krabbamein í blöðruhálskirtli, verða með mánaðarlegan rabbfund sinn í húsi Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8 í Reykjavík miðvikudaginn 6. febrúar kl. 17:00.
Gestur fundarins verður Þórdís Katrín Þorsteinsdóttir dósent við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands og forstöðumaður Rannsóknastofu Landspítalans og HÍ í bráðafræðum. Þórdís ætlar að segja hópnum frá sænskum rannsóknum er snúa að hugsunum og líðan eftir greiningu krabbameins í blöðruhálskirtli
Fundurinn er einkum ætlaður þeim sem greinst hafa með krabbamein í blöðruhálskirtli og aðstandendum þeirra. Kaffi verður á könnunni.