Rabbfundir - samvera: Lungnahópurinn
Rabbfundir fyrir fólk sem hefur greinst með krabbamein í lungum og aðstandendur verða haldnir í húsnæði Ráðgjafarþjónstu Krabbmeinsfélagsins.
Næsti fundur er fimmtudaginn 8.nóv. kl. 16:30-17:30.
Félagsráðgjafi verður á staðnum og veitir hagnýtar upplýsingar varðandi réttindi sjúklinga og fleira.
Nánari upplýsingar veitir Gunnjóna Una félagsráðgjafi í síma 540 1900.
Allir eru velkomnir, ekki þarf að skrá sig.
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið mánudaga til miðvikudaga kl. 9-16, fimmtudaga kl.9-18 og föstudaga kl.9-14. Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 13-15.