Para- og kynlífsráðgjöf

  • 17.11.2022, 9:00 - 16:00, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Boðið er upp á para- og kynlífsráðgjöf fimmtudaginn 17. nóvember í húsnæði Krabbameinsfélagsins Skógarhlíð 8.

Ráðgjöfin er ætluð þeim sem greinst hafa með krabbamein og/eða aðstandendum þeirra. Jafnt pör sem einstaklingar geta nýtt sér ráðgjöfina. Tilgangurinn er að vinna að bættu kynheilbrigði og að takast á við breytingar í kjölfar veikinda.

Ráðgjafi er Áslaug Kristjánsdóttir hjúkrunar- og kynfræðingur.


Var efnið hjálplegt?