Óttinn við að endurgreinast
Óttinn við að greinast aftur með krabbamein er mjög algengur meðal fólks sem lokið hefur krabbameinsmeðferð. Ótti við endurgreiningu getur skert lífsgæði, aukið vanlíðan og dregið úr getu fólks til að aðlagast breyttum aðstæðum, einnig getur fólk upplifað fjölda líkamlegra einkenna sem rekja má til þessa ótta.
Á námskeiðinu er meðal annars farið yfir hvað felst í þessum ótta, hvaða einkenni fólk finnur fyrir, og leiðir til þess að takast á við óttann við að endurgreinast.
Leiðbeinandi er Þorri Snæbjörnsson, sálfræðingur Krabbameinsfélagsins
Námskeiðið verður miðvikudaginn 25. október frá klukkan 13:00 – 15:00 í húsnæði Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8.
- Skráning á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040.
- Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem hafa lokið krabbameinsmeðferð og hafa upplifað ótta við að endurgreinast.