Örráðstefna: Krabbamein í blöðruhálskirtli er ekki einfalt mál
Örráðstefna Mottumars 2018 verður fimmtudaginn 15. mars kl. 16:30-18:00.
Fjallað verður um krabbamein í blöðruhálskirtli frá ýmsum hliðum á ráðstefnunni Krabbamein í blöðruhálskirtli er ekki einfalt mál.
Ráðstefnan fer fram í húsnæði Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8 í Reykjavík.
Fundarstjóri er Randver Þorláksson.
Erindi flytja:
- Jón Örn Friðriksson, þvagfæraskurðlæknir - Skimað til framtíðar
- Ásgeir Helgason, dósent í sálfræði – Kynlíf og Tilfinningaleg einangrun karla með krabbamein
- Sigríður Zoega og Katrín Blöndal, hjúkrunarfræðingar - Hormónahvarfsmeðferð karlmanna vegna blöðruhálskirtilskrabbameins - þarfir maka
- Sigurður Skúlason, leikari – reynslusaga
- Guðmundur Pálsson, vefstjóri – Karlaklefinn – ný vefgátt fyrir karlmenn og krabbamein
Ráðstefnan er öllum opin meðan húsrúm leyfir og aðgangur er ókeypis.