Örráðstefna um skimun fyrir krabbameinum
Krabbameinsfélag Íslands býður til örráðstefnu um skimun fyrir krabbameinum undir yfirskriftinni: Screening for cancer of the cervix, breast and colorectum: Organization, success, pitfalls and current challenges.
Ráðstefnan fer fram miðvikudaginn 6. mars kl. 15 - 17:15 í húsi Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð 8. Boðið verður upp á kaffiveitingar frá kl. 14:45.
Erindi flytja:
- Ágúst Ingi Ágústsson, yfirlæknir Leitarstöðvar Krabbameinsfélags Íslands
- Giske Ursin, yfirmaður norsku krabbameinsskrárinnar og framkvæmdar skimana í Noregi
- Nea Malila, yfirmaður finnsku krabbameinsskrárinnar og framkvæmdar skimana í Finnlandi
- Thor Aspelund, formaður skimunarráðs
- Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra
- Ráðstefnuslit: Alma D. Möller, landlæknir.
- Fundarstjóri: Helgi Birgisson, yfirlæknir Krabbameinsskrár
Markmið ráðstefnunnar er að auka þekkingu á framkvæmd skimana fyrir krabbameinum með því að skoða stöðuna hér á landi og kynnast reynslu nágrannaþjóðanna.
Ráðstefnan er fyrst og fremst ætluð fagfólki og fer fram á ensku.
Ráðstefnan er þátttakendum að kostnaðarlausu.
Skráning er hér eða á krabb@krabb.is
Ráðstefnunni verður streymt í Streymisveitu Krabbameinsfélagsins: