Opnir fjartímar: Slakaðu á heima
Opnir tímar í slökun hafa notið mikilla vinsælda hjá okkur í Ráðgjafarþjónustunni. Þar sem við getum ekki tekið á móti hópum sem stendur langar okkur að færa tímana heim til þín.
Alla þriðjudaga kl. 11:00 – 11:30 munum við bjóða upp á tíma í slökun með beinni útsendingu á Facebook hópnum: “Slökun og velliðan”
Það eina sem þú þarft að gera er að finna hópinn á facebook, biðja um inngöngu í hópinn og heimsækja síðuna. Gott er að klæðast þægilegum fötum sem þrengja ekki að þér. Finndu þér notalegan stað þar sem þú getur legið í rúminu eða á dýnu með teppi og leyfðu þér að eiga gæðastund.
Slökun og hugleiðsla er góð leið til að kyrra hugann, losa um streitu og auka vellíðan.
- Hægt er að fá nánari upplsýngar og aðstoð við að skrá sig í hópinn með því að senda póst á radgjof@krabb.is eða hafa samband í síma 800 4040.
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík og er opin virka daga frá kl. 9-16. Símaráðgjöf er á opnunartíma í síma 800 4040. Einnig er hægt er að senda fyrirspurnir á radgjof@krabb.is og er þeim svarað eins fljótt og hægt er.